02.12.1943
Efri deild: 59. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 477 í B-deild Alþingistíðinda. (561)

36. mál, kjötmat o.fl.

Frsm. (Páll Hermannsson):

Herra forseti. Þetta frv., er hér liggur fyrir, hefur tekið dálitlum breyt. í hv. Nd., sem sé, að fellt hefur verið aftan af frv. viðbót, sem áður var á því í þessari hv. deild. og — að mig minnir — var gerð eftir skrifl. till. frá hv. 3. landsk. Ég hygg, að það sé auðvelt fyrir hv. dm. að átta sig á þessari breyt., því að það er aðeins hálf önnur lína, sem er felld burtu, en hún fjallar um, að fella skuli niður í þessu frv., að gera skuli verðmismun á kjöti í útsölu eftir vörugæðum. Frv. er þess vegna eins og það var, þegar það kom frá hv. Nd. til þessarar hv. d. Ég vil því aðeins upplýsa það, að ég ætla, að það hafi komið fram við meðferð málsins í hv. Nd., að þetta ákvæði hafi verið talið eðlilegt eins og hægt er að framkvæma það, en hins vegar hafi það ekki verið talið eiga heima í þessu frv., heldur ætti slíkt ákvæði að vera í l. um verzlun með sauðfjárafurðir á innlendum markaði. Ég vildi aðeins upplýsa þetta, ef ske kynni, að einhver hv. dm. hafi ekki gefið því gaum, í hverju breyt. er fólgin.