17.11.1943
Efri deild: 50. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 482 í B-deild Alþingistíðinda. (578)

92. mál, lífeyrissjóður hjúkrunarkvenna

Frsm. (Haraldur Guðmundsson) :

Herra forseti. Fjhn. hefur haft þetta mál til athugunar á mörgum fundum og fallizt á þau rök, er þar koma fram, að heppilegra sé að hjúkrunarkonur hafi sérstakan lífeyrissjóð. — Ástæður fyrir sérstöðu þessari eru einkum þær, að í lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins er gert ráð fyrir, að mikið af framlagi sjóðsins renni til eftirlifandi maka. Þessi liður verður lítill hjá hjúkrunarkonum, þar eð flestar láta af störfum, þegar þær giftast.

Þá er gert ráð fyrir, að örorkuhætta sé meiri meðal hjúkrunarkvenna en annarra starfsmanna ríkisins, t. d. vegna smitunar. Enn fremur virðist ekki gerlegt að setja aldurstakmark hjúkrunarkvenna hærra en 60 ár, þar sem aldurstakmark annarra starfsmanna er miðað við 65 ára aldur.

Með tilliti til þessara atriða hefur fjhn. fallizt á, að stofnaður sé sérstakur sjóður fyrir hjúkrunarkonur. Réttur til lífeyris úr sjóðnum er bundinn því, að greitt hafi verið til hans í tíu ár. N. ber fram tvær brtt. við 10. gr. frv. Hin fyrri er um, að í stað „50%“ í 2. málsl. greinarinnar komi: 25%. — Er þetta um lífeyri eftirlifandi barna, og er þessi breyting gerð til samræmis við lífeyrissjóð barnakennara og hinn almenna lífeyrissjóð. Hin síðari er um, að gildistökuákvæði frv. sé breytt, þannig að lögin öðlist gildi hinn 1. júlí í stað 1. jan., eins og lagt er til í frv. Fleiri athugasemdir vildi ég ekki bera fram.