28.10.1943
Neðri deild: 39. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 485 í B-deild Alþingistíðinda. (601)

121. mál, lántaka fyrir ríkissjóð

Einar Olgeirsson:

Ég álít, að ýmislegt þurfi að athuga í sambandi við þetta mál.

Í fyrsta lagi er það spursmál, hvort hentugt er fyrir þjóðina að greiða upp þær skuldir, sem hún á nú rétt til að greiða. Út frá venjulegu sjónarmiði virðist þetta sjálfsagt, og eðlilega vill þjóðin vera skuldlaus, en um það er gott eitt að segja. En það, sem ég tel rétt að athuga, er hvað verður um innstæður okkar erlendis. Er trygging fyrir því, að við fáum þær greiddar? Eða í öðru lagi, getum við ekki búist við verðgildisbreytingum á þeirri mynt, sem við eigum mest fé í? Hugsum okkur t. d., að Bretar lækkuðu pundið, sem geti verið heppileg ráðstöfun til að grynna á stríðsskuldum. Annað eins hefur skeð undir svipuðum kringumstæðum. Ef þetta ætti sér stað, þá væri það beint tap fyrir okkur að lúka þessar skuldir nú. Hins vegar er mjög ósennilegt, að pundið hækki. Þess vegna tel ég óráðlegt að keppast við að greiða þessar skuldir nú, meðan við eigum 400 milljónir inni í erlendum bönkum. Ég skil afstöðu ríkisstj. í þessu máli. Hún hugsar fyrst og fremst um að létta skuldum af ríkissjóði. En hitt er annað mál, hvort Alþingi fellst á, að þessi leið verði farin.

Þá er hitt atriðið, að heimila ríkisstj. 10 milljón króna lántöku. — Við verðum að gera okkur ljóst, að lántökum innan lands hljóti að vera takmörk sett, og jafnframt ber að líta á það, hvernig sú fjármálapólitík muni reynast að tefja nauðsynlegar framkvæmdir til þess að greiða þessar skuldir. Ég álít, að okkur bæri fyrst og fremst að nota lánstraust og fjármagn til þess að auka framleiðslutæki þjóðarinnar, og væri vel, ef ríkisstj. verði því til að endurbyggja og bæta fiskiflotann, fremur en greiða gamlar skuldir. Ég tel mjög varhugavert að fara inn á þessa braut. Ég tel þetta lán vafasamt að öllu leyti, meðal annars eru þeir vextir, sem hér er gert ráð fyrir, mikils til of háir. Ég vildi drepa á þetta nú strax við 1. umr. án þess þó að tefja fyrir frv., og vona ég, að n. athugi þetta.