25.10.1943
Efri deild: 39. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 488 í B-deild Alþingistíðinda. (621)

24. mál, lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins

Frsm. (Haraldur Guðmundsson) :

Herra forseti. Frv. það, sem hér liggur fyrir, er samið skv. þál., sem samþ. var í sameinuðu Alþingi 1942. Að því unnu þeir Guðmundur Kr. Guðmundsson tryggingafræðingur og Ólafur Lárusson prófessor. Það segir sig sjálft, að lög, sem orðin eru um 20 ára gömul, muni þurfa umbóta við. Þau eru ekki vonum fyrr endurskoðuð, þegar þess er gætt, hve fjárhagsaðstaðan í landinu hefur breytzt á þessum tíma, og eru þau því að vonum mjög langt frá því að ná því marki, sem þeim er ætlað.

Eftirlaun og líftryggingar hafa breytzt verulega, síðan lögin voru sett, og ýmsar stofnanir hafa komið á fót lífeyrissjóðum. Mun ég nú víkja að einstökum breytingum.

Gert er ráð fyrir, að starfsvið sjóðsins víkki svo, að það nái til allra starfsmanna ríkisins, hvort sem þeir taka laun eftir launal. eða eru ráðnir á annan hátt. Með því á að tryggja, að þeir, sem eru ekki ráðnir skv. launal., fái sama rétt. Afkoma þeirra er óvissari, og er því eðlilegt að setja þetta ákvæði í lögin. Auk þess er gert ráð fyrir, að starfsmenn bæjar- og sveitarfélaga og opinberra stofnana og aðrir, sem vinna í almennings þágu, öðlist rétt til að gerast sjóðfélagar. Um þessa menn er svipað að segja og aðra, sem fá laun beint úr ríkissjóði, og þykir því rétt, að þeir sæti sömu kjörum og aðrir starfsmenn ríkisins. Hér má nefna stofnanir eins og t. d. héraðsskólana, sem þó eru að mestu leyti bornir uppi af ríkissjóði.

Þriðja brtt. skiptir einna mestu máli, en hún gerir ráð fyrir, að iðgjaldagreiðslan skiptist, komi einnig frá ríkissjóði og bæjar- eða sveitarfélagi. Til þessa hafa launþegar greitt þau öll, nú á að skipta þeim þannig.

Ég gat þess í upphafi máls míns, að nokkur einkafyrirtæki hefðu komið upp lífeyrissjóðum fyrir starfsmenn sína. Þar er iðgjaldagreiðslan borin uppi að hálfu af hvorum aðila. Reykjavíkurbær fylgir nokkuð öðrum reglum í þessu efni, því að bæjarsjóður greiðir iðgjöldin. En Reykjavíkurbær er einn um þessa aðferð, að því er ég bezt veit. Skv. útreikningi þeirra, sem sömdu frv. þetta, er talið hæfilegt að greiða 8 af hundraði í iðgjöld. Gert er ráð fyrir, að launþegi og launagreiðandi greiði sinn helminginn hvor, og greiði laungreiðandinn ekki 4, heldur 6 af hundraði til sjóðsins.

Ef rannsókn á hag sjóðsins þykir leiða í ljós, að fjárhagsgrundvöllur hans sé eigi tryggur, skal tryggingasérfræðingur sá, er rannsóknina framkvæmir, gera tillögur um viðreisn hans. Hins vegar mætti lækka iðgjöldin, er fram líða stundir, ef hagur sjóðsins teldist geta staðizt það. En sjóðsstjórnin má ekki lækka iðgjöldin meira en nemur því, sem tryggingafræðingur hefur talið fært og lagt til.

En nú gæti svo farið, að talið yrði, að lífeyrissjóður ætti ekki fyrir skuldum:

Stofnféð minna en þyrfti til að mæta skuldum. Greiðslur úr sjóðnum. Það er hagnaður hans, ef maður hættir að vera sjóðfélagi án þess að fá greiðslu úr honum. Má gera ráð fyrir, að ákvæði þar að lútandi verði ekki fellt burt.

Það er mjög mikilsvert, að launagreiðslan er miðuð við alla upphæð launanna, en ekki grunnlaun. Þó ber ekki að greiða af lægri launum en kr. 5000.00. Það er óhjákvæmilegt að miða við launaupphæðina alla, eins og launin hafa verið nú um tíma, en ekki grunnlaun.

Réttur til lífeyris úr sjóðnum er miðaður við, að sjóðfélagi hafi greitt iðgjöld í 10 ár eða lengur og sé annaðhvort fullra 65 ára eða samanlagður aldur hans og þjónustutími sé 95 ár. Það er eðlilegt að miða upphæð þá, sem hlutaðeigandi sjóðfélagi fær greidda, við meðallaun hans síðustu 10 starfsár hans, áður en hann lætur af starfi. Sé gert ráð fyrir, að með því að miða við heildarlaun síðustu 10 ára, komist launþegi í hæsta launaflokk, vegur það upp á móti þeirri hundraðshlutalækkun, sem ráð er fyrir gert.

Í gildandi lögum eru ákvæði um rétt til lífeyris. Það er hér gert ráð fyrir, að hver sjóðfélagi, sem vegna örorku verður ófær til að gegna starfi sínu eða missir hluta af launum sínum vegna hennar, fái örorkulífeyri. Hér er átt við heilsubilun eða slík tilfelli, þegar maður af eðlilegum ástæðum vegna hrörnunar verður ófær til starfs. Ef hægt er að rekja orsök örorkunnar til starfs þess, sem öryrkinn hefur haft með höndum, fær hann fullan lífeyri, eins og hann mundi hafa fengið, ef hann hefði getað gegnt starfi til 65 ára aldurs. Ef þrítugur maður t. d. læknir, verður öryrki, fær hann þegar þennan rétt, enda sé litið svo á, að örorkan hafi hlotizt af eða sé bein afleiðing af starfi mannsins.

Lífeyrir ekkju og barns (eða barna) látins sjóðfélaga miðast við starfstíma hins látna og meðallaun síðustu 10 starfsár hans. Að því er snertir lífeyri barns, er gert ráð fyrir, að miðað sé við framfærslukostnað í Reykjavík að viðbættum 25%. Framfærslukostnaðurinn er kr. 1600.00 og kr. 1700.00, og yrði hann þá um kr. 2000.00. Niðurstaða n., sem hafði frv. þetta til athugunar, var sú um þetta atriði, að í stað „50%“ í 2. málsgr. 15. gr. komi: 25%. Yrði þá lífeyrir barns innan 16 ára aldurs kr. 2100.00. Sé um algerlega munaðarlaust barn að ræða, þykir framfærslukostnaður þess hæfilega ákveðinn kr. 3400.00, og hygg ég, að óþarfi sé fyrir deildarmenn að láta þetta vaxa sér í augum. Með þessu er aðeins sómasamlega séð fyrir barninu, og er þó ekki gert ráð fyrir eignum ekkjunnar.

Meiri hlutinn af greiðslum úr sjóðnum er til manna, sem láta af embætti fyrir aldurs sakir, og má gera ráð fyrir, að uppbót á ellitrygginguna nemi miklu.

Lagt er til í frv., að sérstök stjórn verði sett yfir sjóðinn og hefur fjhn. talið rétt að mæla með því.

Enn fremur er gert ráð. fyrir, að rétt sé, að l. komi til framkvæmda strax eftir gildistöku þeirra.

Nefndin telur frv. vel samið og þurfi ekki breytinga, og skal ég víkja að þessu, þegar ég hef gert grein fyrir fjárhagshlið málsins.

Samkv. áætlun þeirri, sem frv. fylgir, er gert ráð fyrir því, að framlag ríkissjóðs og annarra launagreiðenda til sjóðsins muni nema á ári, miðað við vísitöluna 250, eitthvað nálægt 924 þús. kr. Mestan hluta þessa fjár mundi ríkissjóður greiða og þær stofnanir, sem þetta fólk vinnur hjá, sem eru ríkisstofnanirnar. Þó mundu að óbreyttum l. að öðru leyti bæjar- og sveitarfélög greiða verulegan hluta, þ. e. a. s. þann hluta, sem miðast við það, sem þau greiða nú af starfslaunum þessa fólks t. d. kennara. Þegar hins vegar búið er að jafna þann halla, sem sjóðurinn fær af því að taka nú þegar á sig skuldbindingar til þess að greiða núverandi sjóðfélögum samkv. ákvæðum þessa frv., ef að l. verður, þá má gera ráð fyrir, að hluti ríkissjóðs til þessara greiðslna muni geta lækkað niður í það sama og launþegum er ætlað að greiða, þ. e. 4%. Að öðru óbreyttu ætti þessi hluti að geta lækkað þannig um h. u. b. þriðjung.

Ég get látið mér detta í hug, að sumum þyki þessi upphæð nokkuð há. En ég skal í því sambandi benda á til athugunar, að meginhlutinn af greiðslum 18. gr. er ætlazt til, að geti fallið niður, þegar starfsmenn ríkisins njóta þeirra eftirlaunakjara, sem frv. gerir ráð fyrir.

Vegna þess, hve ófullnægjandi l. um lífeyrissjóð barnakennara og l. um lífeyrissjóð embættismanna nú eru, hefur það reynzt nauðsynlegt að ákveða, að ríkissjóður skyldi greiða uppbætur á lífeyri úr þessum sjóðum, sem nema 30% af lífeyrisupphæðinni, og síðan verðlagsuppbót, eins og á laun. Þessar uppbætur nema nú eitthvað nálægt 200 þús. kr. á ári, miðað við þá, sem nú taka lífeyri úr lífeyrissjóðum barnakennara og embættismanna. Með því að samþ. frv. þetta, eins og það liggur hér fyrir, má gera ráð fyrir, að til slíkrar viðbótar við lífeyrinn eigi ekki að þurfa að koma. Þessar 924 þús. kr. eru ekki aðeins lífeyrisgreiðslur vegna þessa frv. um lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins; heldur og vegna frv. um lífeyrissjóð barnakennara.

Ég skal þá víkja örfáum orðum að brtt. n. 1. tölul. er um, að bætt verði aftan við 8. gr. nýrri málsgr. um, að ráðh. geti kveðið nánar á um útlán sjóðsins með reglugerð og þar á meðal um lánveitingar til íbúðarhúsabyggingu fyrir meðlimi sjóðsins. Um allmörg ár hefur lífeyrissjóður barnakennara lánað fé með sérstökum kjörum til bygginga íbúðarhúsa barnakennara. Ég hef einnig orðið var við, að óskir hafa komið fram um það, að lífeyrissjóður embættismanna greiddi fyrir byggingu íbúðarhúsa fyrir sjóðfélagana. N. álítur rétt að bæta þessu ákvæði við 8. gr. frv. Enn fremur mætti setja í reglugerð ákvæði um það, hve langur lánstíminn mætti vera.

Þá leggur n. til, að aftan við 14. gr. frv. bætist nýr málsl., eins og þar hermir. En 14. gr. frv. gerir ráð fyrir, að þegar ekkja, sem nýtur lífeyris, giftist öðru sinni, falli niður réttur hennar til lífeyris, en ef hún svo missir mann sinn eða því hjónabandi er slitið, skuli hún aftur öðlast rétt til lífeyrisins. En hins vegar getur konan gifzt enn á ný og sá maður hennar sé þá sjóðfélagi í lífeyrissjóðnum. Þess vegna er lagt til með þessum 2. tölul. brtt. n., að aftan við 8. gr. frv. bætist: „enda veiti hið síðara hjónaband eigi rétt til lífeyris úr sjóðnum.“

Þá leggur n. til, að 15. gr. frv. verði breytt þannig, að í stað 50%, sem ætlazt er til, að greitt verði ofan á upphæð meðalmeðgjafar í Reykjavík, ef foreldri eða kjörforeldri barns er á lífi, komi 25%. Er þetta til samræmis við slíkar greiðslur almennt. Hins vegar er gert ráð fyrir, að ákvæði 15. gr. frv. verði óbreytt viðkomandi álaginu, sem greiða skal ofan á meðalmeðlag, ef barn er munaðarlaust.

Þá telur n. einnig rétt, að við síðustu gr. frv. bætist ákvæði um, að eldri lög um þetta efni falli niður.

Skal ég svo láta útrætt um frv. að sinni. N. leggur til, að frv. verði samþ. með þeim breyt., sem hér er lagt til, að gerðar verði.