01.11.1943
Efri deild: 42. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 491 í B-deild Alþingistíðinda. (623)

24. mál, lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins

Frsm. (Haraldur Guðmundsson):

Mér hefur verið bent á, að orðalag í síðustu málsgr. 14. gr. frv. geti ef til vill orkað tvímælis í framkvæmd, en þar segir svo: „Réttur til lífeyris samkvæmt þessari gr. fellur niður, ef hinn eftirlifandi maki gengur í hjónaband að nýju, en kemur aftur í gildi, sé hinu síðara hjónabandi slitið, enda veiti hið síðara hjónaband eigi rétt til lífeyris úr sjóðnum“. Ég hygg, að það sé skoðun n. allrar, að ekkjan eigi þess völ að kjósa um, hvort hún vill heldur njóta lífeyris samkv. fyrra eða síðara hjónabandinu, en hún geti hins vegar aldrei notið hvors tveggja í einu.