11.12.1943
Neðri deild: 62. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 499 í B-deild Alþingistíðinda. (631)

24. mál, lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins

Frsm. meiri hl. (Jakob Möller) :

Ég þarf ekki að svara þessu miklu. Ég skal taka það fram, að ég er þm. V.-Húnv. sammála um þau atriði, er hann dró fram úr 12. gr. viðvíkjandi meðallaunum síðustu 10 ára. Ég hef síðan talað við tryggingafræðing um þetta. Hann sagði, að vegna ýmissa örðugleika hefði hann ekki talið aðra leið færa. En ég er reiðubúinn að athuga þetta og færa í lag, ef auðið er.

En út af aðaldeiluefninu, sem orsakaði klofningu n., þá er það ekki vegna ákvæða þessara l., heldur alþýðutrygginganna. Það var því ekki af því að meiri hl. væri á móti þessum atriðum, að hann tók sína afstöðu, heldur af því, að þetta viðkemur alþýðutryggingunum. Annars er ég brtt. ekki fullkomlega fylgjandi í ýmsum atriðum, en ég tel, að það komi þessu máli ekki við, og legg því þessa till. fram, ekki eingöngu af því að ég sé á móti efni brtt., heldur af því að hún á ekki við það atriði, sem hér um ræðir.