11.12.1943
Neðri deild: 62. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 499 í B-deild Alþingistíðinda. (632)

24. mál, lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins

Frsm. minni hl. (Skúli Guðmundsson):

Hv. 3. þm. Reykv. segir, að ágreiningurinn í n. sé ekki um þetta frv. Má vera, að þetta sé rétt. En þetta frv. er svo nálægt lagaákvæðunum um Lífeyrissj. Íslands, að erfitt mun að greina þar á milli. Og þegar þetta er afgreitt, þá tel ég nauðsynlegt, að hvort tveggja sé tekið til athugunar í einu, og það verður bezt gert með því að samþykkja brtt. minni hl. eða fresta málinu, þangað til að unnt verður að taka alþýðutryggingarnar fyrir. En við þm. A.-Húnv. vildum ekki tefja frv., ef þessi atriði yrðu færð í lag.

Það má vera, að hér sé um auknar byrðar að ræða, en það eru einnig aukin hlunnindi. Menn verða að borga meira, en þeir njóta líka meiri fríðinda. Annars skilst mér, að meiri hl. hafi ekki tekið neina endanlega afstöðu til sértryggingasjóðanna í framtíðinni. Ef gjaldendur í sértryggingasjóðunum eru undanþegnir tryggingarskyldu hjá almenna sjóðnum, má búast við, að gjaldendum til almennra sjóða fækki óðum. Hitt er eðlilegra, að þeir, sem betur mega, styðji þá, sem lakar eru settir. Að öðrum kosti mundi þeim, sem mesta þörfina hafa, reynast erfitt að standa undir tryggingunum.

Mér þótti vænt um það, sem 3. þm. Reykv. sagði um 12. gr. frv., og ég vænti, að auðið verði að komast að samkomulagi um nauðsynl. breyt. á henni.