16.12.1943
Neðri deild: 65. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 502 í B-deild Alþingistíðinda. (644)

24. mál, lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins

Jón Pálmason:

Herra forseti. Það stóð nú svo á, að ég var staddur á flokksfundi, þegar þetta mál var hér til umr. í hv. deild, og hafði því ekki ástæður til að gera grein fyrir áliti mínu á því þá, en það er á þá leið, að ég tel ekki, að nauðsyn beri til að knýja þetta mál fram á þessu þingi.

Það eru 3 atriði í þessu frv., sem ég tel, að athuga þurfi betur, áður en það nær lögfestingu. 1. Með þessu frv. verða stórum aukin útgjöld á ríkissjóði, opinberum stofnunum og bæjarfélögum, sem þetta frv. tekur til, og mundi það nema, svo að milljónum króna skiptir, og það eru útgjöld, sem ég tel, að ekki muni verða svo auðvelt að breyta til um aftur. Þess vegna álít ég, að út frá þessu sjónarmiði einu sé æskilegt, að þetta frv. sé ekki samþ. nema í sambandi við launal.

2. Það er mál, sem þarf að taka til athugunar, sem minni hl. fjhn. flutti við 2. umr., hvort það á að verða regla, að allar þær stéttir eða félagsheildir, sem mynda með sér samtök um að stofna lífeyrissjóði, eigi að vera undanþegnar þeirri skyldu að greiða í Lífeyrissjóð Íslands, hinn sameiginlega sjóð allra landsmanna. Við fluttum um þetta brtt., en hún var felld.

3. Það, sem liggur fyrir í þeirri skrifl. brtt., sem við hv. þm. V.-Húnv. flytjum hér, er það, að lífeyrisgreiðsla úr sjóði opinberra starfsmanna geti ekki orðið hærri en laun starfandi manns í sömu grein eru, en það geta þau raunverulega orðið, eins og l. nú eru.

Varðandi það, sem frsm. meiri hl., 3. þm. Reykv. (JakM), var að tala um, að auðvelt væri að breyta þessu á næsta þingi, höfum við enga vissu fyrir að geta það, og þegar um svona milljónal. er að ræða eins og þessi, sem fela í sér margra millj. kr. útgjöld fyrir hið opinbera, tel ég það lágmarkskröfu, að gengið sé svo frá þeim, að ekki sé yfirlýst af fylgismönnum þeirra, að það þurfi nauðsynlega að breyta þeim á næstkomandi þingi.

Ég vil því segja það, að ef þessi till. frá okkur verður felld, mun ég ekki sjá mér fært að greiða frv. atkv. Það kann að hafa meirihl.fylgi hér í hv. d. fyrir því, og verður það þá að ráðast.