25.10.1943
Efri deild: 39. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 503 í B-deild Alþingistíðinda. (653)
25. mál, lífeyrissjóður barnakennara
Frsm. (Haraldur Guðmundsson) :
Ég get að langmestu leyti látið mér nægja að vísa til þess, sem ég sagði áðan um það frv., sem hér var afgreitt næst áður nú á fundinum í þessari hv. d., um lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins. Þó þykir mér rétt að taka það fram, að hér er ekki um það að ræða að víkka starfsvið sjóðsins frá því, sem nú er. Annað atriði, sem ég vil benda á í sambandi við þetta mál, er það, að þau tiltölulega fátæklegu ákvæði, sem eru í l. um lífeyrissjóð embættismanna og ekkna þeirra, varðandi lífeyri til ekkna og barna, eru þó enn þá ófullkomnari í l. um lífeyrissjóð barnakennara en í l. um lífeyrissjóð embættismanna.
Fjhn. leggur til, að þetta frv. verði samþ. með sömu breyt. og gerðar voru á frv. til l. um lífeyrissjóð embættismanna, og eru brtt. n. á þskj. 226. N. telur, að ef þessi frv. tvö verði samþ., þá sé því marki nokkurn veginn náð, sem hún telur, að eigi að vera hlutverk þessara sjóða, þ. e. a. s., að starfsmönnum ríkisins sé tryggður sæmilegur lífeyrir og nánustu vandamönnum þeirra, sem þeim ber að framfæra, þegar þeir verða að láta af störfum. Með þetta fyrir augum leggur n. til, að þetta frv. verði samþ. með þeim breyt., sem greint hefur verið frá.