19.11.1943
Neðri deild: 50. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 522 í B-deild Alþingistíðinda. (688)
154. mál, olíugeymar o.fl.
Atvmrh. (Vilhjálmur Þór):
Herra forseti. Í tilefni af ræðu hv. þm. G.-K. vil ég láta í ljós ánægju mína að svo miklu leyti sem hann er stuðningsmaður þessa frv. Mér skilst af ræðu hans, að hann sé því samþykkur, að ríkisvaldið stuðli að því, að útvegsmenn geti fengið nauðsynjavörur sínar keyptar á sem ódýrastan hátt með samvinnu, og er það vel.
Hv. þm. spurðist sérstaklega fyrir um það, hvort ég teldi ekki 6. gr. frv. varhugaverða, vegna þess, að mér skildist, að olíufélögin væru það voldug, að þessi gr. gæti valdið óþægindum, ef samþ. yrði. Ég veit um tvö olíufélög, Olíufélag Íslands og Shell, og ég geri ráð fyrir, að þau séu bæði voldug að því leyti, að þau hafa grætt mikið á undanförnum árum og eru peningalega sterk, en ég sé ekki, að það geti breytt neinu um afstöðu þingsins til 6. gr., ef hún er nauðsynleg til að ná því marki, sem við erum sammála um, að verði að ná, — að koma olíudreifingunni í gott horf. Það ætti þá ekki að skipta máli, hvort þessum tveim aðilum líkar dálítið betur eða verr. Ég sagði á fundi í dag, að ég teldi æskilegt til að ná fullum árangri að hafa þessi ákvæði í frv., og sú skoðun mín er óbreytt enn. Mér virðist því ekki þörf á að fara frekar út í þetta atriði frv. En ég hlýt að koma örlítið inn á það, sem hv. þm. hóf mál sitt á, þar sem hann átelur mig fyrir að hafa við framsögu þessa máls hér í hv. d. hallað réttu máli og ekki farið nákvæmlega með staðreyndir, heldur hallað á fyrrv. ríkisstj. Ég furða mig mjög á þessum ásökunum, því að ég hef það ekki á tilfinningunni, að ég hafi hallað á fyrrv. ríkisstj. Það, sem hv. þm. á við, eru þessi orð mín: „Ríkisstj. tók við olíumálum landsins þann 16. des., og var þá stórkostleg hækkun skollin á. Samkv. upplýsingum olíufélaganna nam þessi hækkun 7 millj. kr., en fyrir góðan skilning Bandaríkjastjórnar fékkst þessi hækkun felld úr gildi og það þannig, að hún verkaði aftur fyrir sig.“ Ef eitthvert orð í þessu er ekki rétt, er ég reiðubúinn að taka það aftur. Heildsöluverðið var hækkað, og lágu fyrir tilkynningar um það, og eingöngu þess vegna taldi fyrrv. utanrrh. þörf á að ræða málið við sendiherra Bandaríkjanna og gera um það skriflegt erindi til sama ríkis. Hann gat ekki verið að ómaka sig þetta nema af því, að það var komin hækkun á heildsöluverðið, enda þótt haldið væri aftur af olíufélögunum með það að hækka verðið í smásölu.
Hv. þm. G.-K. minntist á, að hann sem fyrrv. utanrrh. hefði í þessu samtali við sendiherra Bandaríkjanna fært fram öll rök, sem hægt er, í þessu máli. Ekki finnst mér nú lítillætið neitt smáræði, er hann segist hafa fært fram öll rök, sem hægt er, í þessu máli. En ég ætla ekki að fara að munnhöggvast frekar um þetta eða það, hvort ég hafi fært fram einhver rök síðan, en ég vil minna hann og hv. þd. á það, að það var ekki fyrr en í marz, sem málið var leyst, og frá 16. des. og þar til í marz átti ég margar viðræður við þennan embættismann og get gefið þær upplýsingar, að hann taldi sig hafa ástæðu til að senda skeyti til sinnar ríkisstj. til frekari áréttingar á málinu. Ég veit, að hv. þm. G.-K. er það fullkunnugt, að ráðh. hefur nóg að gera og fer ekki til slíkra viðræðna nema full þörf sé á, og ég get fullvissað hann um, að ég ónáða ekki sendiherra nema nauðsyn beri til.
Með tilvísun til þeirra orða, sem ég las upp áðan og hafði við framsögu þessa máls, vil ég undirstrika það, að mér finnst ómaklegt að segja, að ég hafi farið rangt með eða hallað í fyrrv. ríkisstj.
Ég sagði áður, að núv. ríkisstj. hefði strax verið ljóst, að mikil þörf væri úrbóta. Hv. þm. spyr nú, hverjar séu úrbætur ríkisstj. Úrbæturnar eru þær, að stj. fékk því framgengt, að flotastj. seldi ekki aðeins olíufélögunum, heldur einnig öðrum stofnunum, sem ísl. stj. tilnefndi. Þessara fyrstu úrbóta naut síldarútvegur Siglufjarðar á síðasta sumri með því að fá olíuna fyrir 38 aura kg., á meðan olíufélögin seldu hana á 51 eyri. Í öðru lagi er það, að útgerðarmenn á Norðfirði geta nú næstu daga fengið olíu með lægra verði. Og í þriðja lagi er það leið til úrbóta, ef Alþ. fellst á að setja þau l., sem lagt er til með frv., því að með því er ætlazt til, að hægt sé að gera dreifingu olíunnar til landsfólksins miklum mun ódýrari en áður, og þykir mér óskaplegt, að ekkert skuli hafa verið gert fyrr til þess að koma upp hæfilegum smágeymum fyrir olíu úti um land. Þetta kostar ekki meira en það, að nú á þessum dýru tímum er það hyggilegt og hagkvæmt, hvað þá fyrir fjórum eða fimm árum, þegar vinnukostnaður var ekki nema lítill hluti af því, sem nú er. Úrbætur ríkisstj. eru þær að fyrirbyggja allt of dýran rekstur á olíusölunni í landinu og skapa útvegsmönnum mun ódýrari olíu en þeir hafa átt kost á, eins og Siglfirðingar og Norðfirðingar hafa fengið og væntanlega fleiri staðir munu fá á komandi tímum.