30.11.1943
Efri deild: 58. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 554 í B-deild Alþingistíðinda. (714)

154. mál, olíugeymar o.fl.

Guðmundur Í. Guðmundsson:

Með því að þetta frv. hefur þegar verið til athugunar hjá sjútvn. þessarar hv. d., þar sem allir hv. nm. hafa tekið þátt í atkvgr. á fundi n. um hverja einustu gr. frv. og frv. í heild, sé ég ekki ástæðu til að vísa málinu til sjútvn. og segi því nei.