10.12.1943
Efri deild: 63. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 559 í B-deild Alþingistíðinda. (729)

154. mál, olíugeymar o.fl.

Atvmrh. (Vilhjálmur Þór):

Herra forseti. — Um afgreiðslu brtt. á þskj. 561 tel ég mig hafa ástæðu til að segja nokkur orð.

Ein breytingin, að setja á 3 stöðum ríkisstjórn f. ráðherra, er í sjálfu sér meinlaus, skiptir ekki máli til eða frá, — í mörgum lögum eru þessi tvö orð notuð mjög jöfnum höndum. Ég mundi hvorki leggja með henni né móti, ef ekki stæði svo á, að samþ. hennar gæti ráðið því, hvort senda þarf frv. aftur til Nd. og stofna því í þá hættu, að það yrði ekki útrætt á þinginu. Ég álít ekki vert að gera á frv. orðabreytingar til tómrar skemmtunar. En um þá brtt. að setja í stað Fiskifélags Íslands Landssamband útgerðarmanna tel ég, að hún sé mjög til hins verra. Hv. þm. Barð. rökstuddi hana með því, að „landssambandið“ væri félag allra útvegsmanna. Er það nú svo? Er ekki fiskifélagið opið öllum útvegsmönnum? Er það verra í augum hv. þm. Barð., að það skuli líka vera félag allra fiskimanna? Um „landssambandið“ hefur mér verið frá því skýrt af kunnugum manni, að ekki hafi aðalfundur verið haldinn í því félagi 2 s. l. ár a. m. k. og sitji stjórn þess því í nafni sjálfrar sín, ókosin. Þetta er þá „landssambandið“, sem taka á fram yfir Fiskifélag Íslands til að vera málsvari fiskimanna á Íslandi, en fiskifélagið hefur, eins og vitað er, starfað mikið að þessum málum af alhliða áhuga. Ég tel því, að það sé til hins verra að gera þessa breyt. Ég tel, að fiskimenn geti haft minni áhrif en ella og útgerðarmenn úti um land, og ég geri ráð fyrir, að hv. þm. Barð. muni vilja falla frá þessari brtt. að fengnum þessum upplýsingum.

Þá er komið að 6. gr. Þar vill hv. þm. gera nokkuð margar breyt., og vil ég fyrst benda á, að hann gerir hér till. um að skjóta inn ákvæði um það, hvernig eignarnám skuli framkvæmt, eins og hann hafi ekki áttað sig á, að til eru l., 26 ára gömul, frá 1917, sem ákveða skýrt og vel, hvernig eignarnám skuli fara fram, og er því ástæðulaust að fara að setja hér inn innskot, sem tiltekur það sama sem er í l. frá 1917. Ég tel víst, að við þessa ábendingu muni hv. þm. fallast á. að þetta sé óþarft og því rétt að nema það úr brtt.

Þá kem ég að því, að hv. þm. vill taka sérstaklega fram, að hafi landeigandi vísað á land á öðrum stað en krafizt hefur verið, skuli eignarnám ekki fram fara, nema fyrir liggi sameiginlegt álit þar til hæfra dómkvaddra manna, að land það, sem bent hafi verið á, sé ónothæft. Í frv. stj. segir: „Ef þörf krefur, getur ráðherra leyft, að samband olíusamlaga, olíusamlög eða félög útgerðarmanna taki lóðir eða lóðarréttindi eignarnámi til þess að reisa á olíugeyma“. Ég sé ekki, að þörf sé eða ástæða að kveða ákveðnara á en þetta. Það leiðir af sjálfu sér, að engin ríkisstj. lætur taka land eignarnámi að gamni sínu. Ef um tvö lönd er að ræða jafngóð við einhverja verstöð, hefði stj. ekki ástæðu til að taka endilega það landið, sem eigandanum væri meiri eftirsjá í.

Hv. þm. Barð. sagði, að hann teldi óeðlilegt og órétt að heimila verzlunarfél. að taka eignarnámi lönd til þessa. Eins og ég benti á við 1. umr., er í hafnarl. gert ráð fyrir heimild til að taka lönd eignarnámi til hafnarmannvirkja í almenningsþarfir. Það er alveg það sama, sem hér er verið að heimila, og er enginn eðlismunur á því, hvort þarf að fá land til hafnarmannvirkja eða land við höfn til að reisa á olíugeyma til almenningsþarfa. Það er um enga nýbreytni að ræða, af því að verið er að heimila eignarnám til fél. vegna mannvirkja, sem eru opin öllum neytendum, sem hagsmuna hafa að gæta.

Ég hef af vangá hlaupið yfir tvö atriði. Það er lagt til í brtt. við þessa sömu gr., að ríkisstj. skuli heimilt að fengnum meðmælum frá Landssambandi ísl. útvegsmanna að taka leigunámi eða eignarnámi olíugeyma o. s. frv. Ég hef sagt það, sem ég hef að segja um landssambandið. En það er mikill munur á því, hvort þarna stendur umsögn eða meðmæli. Ef þarna stendur meðmæli, er ríkisstj. bundin því að geta ekki framkvæmt hlutinn, nema stofnunin fallist á þá framkvæmd. Þar með er valdið tekið af stj. Hitt er almennara að vísa til ákveðinnar stofnunar og biðja um umsögn hennar. Ég er því mjög mótfallinn, að þessi breyt. verði gerð.

Ég get ekki fallizt á, að til bóta sé að takmarka eignarnámsheimildina við árslok 1944, og er mótfallinn slíkri breyt.

Loks kem ég að niðurlaginu í brtt. hv. þm. Ég vil, með leyfi hæstv. forseta, lesa nokkrar línur: „Nú hefur verið komið upp olíugeymum á útgerðarstað með aðstoð ríkisins og olían lækkað þar í verði af þeim ástæðum, en jafnframt hefur olían ekki lækkað hlutfallslega á þeim öðrum stöðum, sem enn verður að flytja olíu að í tunnum, og skal þá ríkisstj. ákveða jafnaðarverð á olíunni á milli þessara staða.“ — Þegar hv. þm. talaði fyrir þessu, sagði hann, að ef aðgerðir frv. yrðu til að hækka olíuverðið annars staðar, væri það órétt. Ég get að vissu marki tekið undir þetta. Ef þær yrðu til að gera sumum landsmönnum erfiðara fyrir en áður, gæti komið til athugunar, hvort ekki væri rétt að bæta úr því, en eins og brtt. er borin fram, er hún um annað efni. Ef á landinu eru menn, sem hafa ekki dug til að nota sér þessa heimild, er lagt til, að dugnaðarmennirnir séu skattlagðir til þess að verðlauna ódugnað hinna. Á móti slíku er ég.

Ég hef með þessum orðum gert grein fyrir því, að það virðist til lítilla bóta, að d. fallist á brtt., og ég leyfi mér að leggja til, að að svo stöddu sé engin brtt. á þskj. 561. samþ.