05.11.1943
Sameinað þing: 27. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 128 í B-deild Alþingistíðinda. (73)

27. mál, fjárlög 1944

Gísli Jónsson:

Herra forseti. Sumpart út af ræðu hæstv. forsrh. og sumpart vegna ræðu hv. þm. V.-Húnv. út af þessu máli vil ég leyfa mér að skýra þetta dálítið nánar. Það væri æskilegt, að hæstv. forsrh. hefði farið rétt með þetta mál. (Forsrh.: Það var rétt eftir þeim bréfum, sem liggja fyrir): Ég hef líka þessi gögn í höndum, og vil ég þá fyrst vitna í bréf frá sýslumanni Barðastrandarsýslu. Bréfið er dagsett 14. jan. 1943 og sent Alþingi. Ég vil leyfa mér að vekja athygli á því, að rn. hefur aldrei sinnt þessu máli eða um það hugsað, og því sneri sýslumaður sér til Alþingis. Fer hann fram á, að Alþingi sinni þessu máli og veiti fé til að laga þau hús, sem rn. bar skylda til að láta lagfæra og hefur fengið sérstaka fjárveitingu til að laga. Í þessu bréfi segir svo, með leyfi hæstv. forseta:

„Ástæðan fyrir því, að enginn hefur fengizt til þess að sækja um brauðið, mun vera sú, að staðarhúsin eru svo úr sér gengin, að enginn prestur vill við þeim taka eða telur forsvaranlegt að flytja þangað fjölskyldu sína.“

„Telja má líklegt, að jörðin leggist nú í eyði, eða því sem næst, ef ekkert er gert til að hindra það.“

„Ég tel, að Brjánslækjarprestakall eigi kröfu á því, að ríkið geri það, sem hægt er, til þess að fá þangað prest. Meðan ríkið styður þjóðkirkjuna og heldur mönnum til þess að hafa samneyti við presta hennar, verður það að sýna, að það telji kirkjuna og kirkjunnar menn nokkurs virði og geri flestum jafnt undir höfði til viðskipta við hana og prestana.“

„Ég vænti þess, að hinu háa ráðuneyti þóknist að taka þetta mál til meðferðar nú sem allra fyrst og að það fallist á framan ritaðar tillögur mínar og láti endurreisa staðinn nú á næsta vori.“

Ég skrifaði ráðuneytinu bréf um þetta efni 19. apríl. Ég veit, að hæstv. ráðh. hefur þetta bréf, og í því er staðfesting á því, sem yfirvaldið í Barðastrandarsýslu hefur sagt um þessi mál. Þegar svo stjórnarráðið hefur látið þetta bréf liggja hjá sér frá 19. apríl til 31. maí án þess að svara því — sem þó var aðkallandi, að því væri svarað, vegna þess að ferðamannastraumurinn var að byrja þarna um, og það var ekki hægt að una við málin eins og þau voru, — þá hringi ég til dóms- og kirkjumálaráðuneytisins og spyr, hvenær eigi að afgreiða þetta mál, og fæ það svar, að hvorki mér né öðrum manni utan stjórnarráðsins komi við, hvenær það afgreiði sín bréf. Ef hæstv. dómsmrh. kallar það rosta, að menn, sem falið er að fá afgreiðslu ákveðinna mála fram, ganga eftir, að bréfum sé svarað, sem eru um jafnáríðandi mál eins og þetta mál, þá skal ég viðurkenna, að það hafi verið í þessu viðhafður rosti. En ég átti heimtingu á að fá svar við þessu frá ráðuneytinu. Og það er engin viðunandi afgreiðsla á máli að halda slíku máli í ráðuneytinu ósvarað í 6 vikur. Og ég vil segja hæstv. dómsmrh. það, að hann las ekki nema nokkurn hluta upp af þeirri ókurteisi, sem í bréfinu stendur. Hér standa fyrst þessi orð, sem hann las upp, en svo stendur síðar í bréfinu, með leyfi hæstv. forseta: „Mundi ekki vera réttara af hr. Gísla Jónssyni, sem er þingmaður Barðstrendinga, að leggja þessu lið á þeim vettvangi, sem sýslumaður hefur réttilega beint því á, í stað þess að vera með ástæðulausar ýfingar við ráðuneytið.“ En ég veit, að hæstv. forsrh. er miklu prúðari embættismaður en svo, að hann mundi nokkurn tíma hafa látið þetta bréf frá sér fara, og sízt leyft að láta senda það út um sýsluna til þess að gera mér beint óhagræði meðal minna kjósenda. Og ég tel það mjög vítavert af embættismanni eins og skrifstofustjóra í stjórnarráðinu að koma svo fram í sínu embættisstarfi eins og hann hefur, gert hér með því að fara með þetta mál eins og hann hefur gert.

Hér er talað um að setja inn í fjárl. aftur risnufé til biskups og launa honum sem vera ber, af því að hann sé einn af æðstu embættismönnum landsins. Enn fremur að setja hér aftur inn húsaleigustyrk til presta. Og ég er sammála um, að þetta sé sjálfsögð skylda. Því er enn fremur haldið fram, að það sé sjálfsagt að leggja svo eða svo mikið til kirkjubygginga. Og ég er því sammála, því að ég er þeirrar skoðunar, að það sé hyrningarsteinn íslenzks þjóðlífs og þjóðmenningar að byggja upp kirkjur landsins og að kirkjan taki meiri þátt í menningarlífi þjóðarinnar heldur en hún nú gerir. Því að það er ómetanlegt starf, sem kirkjan hefur unnið hér á landi undanfarin ár og aldir. En ef svo er hugsað, þá er það meiningarleysi, að dóms- og kirkjumálaráðuneytið skuli forsóma ákveðin prestssetur í landinu, svo að þangað sé ekki hægt neinn prest að fá. Í því er ekkert samræmi að heimta meiri laun fyrir biskup og meira fé til kirkjubygginga í landinu, og á sama tíma skuli ráðuneytið láta það viðgangast, að prestssetur séu til í landinu, sem eru svo illa hýst, að þangað fæst enginn prestur, og ekki aðeins það, heldur að húsin á prestssetrunum séu óboðleg fyrir hvern einasta mann. Því að ef hæstv. forsrh. les bréfið frá sýslumanni Barðastrandarsýslu, þá sér hann þá lýsingu af húsakynnum á þessum stað, að þar er ekki einu sinni hægt fyrir vesalinga að búa, hvað þá fyrir kirkjuhöfðingja. Og þess vegna vil ég fá úr því skorið hér á Alþ., hvort það vill leggja þessu máli lið. Því að það þýðir ekkert í framtíðinni að senda þetta mál stöðugt milli Heródesar og Pílatusar, þannig að Alþ. segi: Það er kirkjumálaráðuneytisins að gera þetta, — en ráðuneytið svo segi: Það er Alþ., en ekki ráðuneytið, sem á að sinna þessu máli, og til Alþ. eiga menn að snúa sér.

Nú vil ég láta mér nægja, ef hæstv. forsrh. vill lýsa því yfir hér, að hann skuli til endurbóta á þessum stað láta 10 þús. af þeim 70 þús. kr., sem nú eru ætlaðar í fjárl. til að endurbyggja eða reisa við prestssetur landsins. Ef hann lofar, að 10 þús. kr. af þessu fé skuli fara til Brjánslækjar á næsta ári, þá er ég ánægður með lausn málsins. En verði það ekki, vil ég gjarnan fá svar hæstv. Alþ. um það, hvort þetta prestssetur á að vera áfram eins vanrækt og á undanförnum árum eða ekki.

Hitt er ekki rétt, sem hæstv. forsrh. virtist halda fram áðan, að þessi till. mín væri borin fram aðallega vegna þess, að svo mikill ferðamannastraumur væri um þennan stað, heldur tók ég það atriði fram til þess að sýna enn frekar fram á, hver nauðsyn er á, að hér verði bætt úr því ófremdarástandi, sem ríkt hefur í þessu efni. En till. er borin fram fyrst og fremst til þess að koma í veg fyrir, að prestssetrið níðist niður sem slíkt. Hvaða vit væri í því líka, þó ekki væri nema frá því sjónarmiði, að hér er um eignir ríkissjóðs að ræða, að láta þær grotna niður fyrir eintóma vanhirðu? Og þó ekki væri nema farið eftir ábúðarl., þá ber ríkinu skylda til að bæta hér úr, því að í íbúðarhúsinu á Brjánslæk er ekki hægt að hafa skepnur, hvað þá menn, ef ekki verða gerðar sérstakar ráðstafanir til umbóta á því, — þannig er ástandið. Það ber því brýna nauðsyn til þess, að ríkið taki á sig rögg og annaðhvort selji þessa eign eða geri við hana. — Ég tel, að ég hafi nú skýrt þetta mál alveg nægilega til þess, að hv. fjvn. og hæstv. Alþ. geti gert það upp við sig fyrir 3. umr., hvernig þessum málum verði skipað. En það er nauðsynlegt að skipa þeim strax, svo að þegar á næsta vori verði hægt að hefjast handa til að bæta úr því ófremdarástandi, sem nú ríkir um þennan stað.

Út af því, að hér hefur verið að því vikið, að ég væri með þessu að berjast fyrir fríðindum fyrir mína kjósendur, þá vil ég segja það, að ég er fyrst og fremst að berjast fyrir sóma kirkjumálaráðuneytisins í þessum efnum. En þessa baráttu skildi ekki sá háttv. (ef maður svo segir) skrifstofustjóri ráðuneytisins, sem nú hefur komið hér til umr. Og þetta mál hefði fengið allt aðra lausn, ef það hefði komizt í hendur hæstv. forsrh. sjálfs, sem einnig er hæstv. kirkjumálarh.

En þær 1429 kr., sem látnar voru til viðgerða á þessu húsi, hafa farið fyrir smáviðgerðir á því, svo sem að láta í rúður, kítta glugga og gera við yfirleitt það allra nauðsynlegasta, sem þurfti á þessu húsi. Og öllum má ljóst vera, hvað er hægt að gera á þessum tímum fyrir einar 1429 kr., og það er ekki nema hverfandi lítið af því, sem þarna þarf að gera við.

Hvað snertir vegamál, þá er ég alveg sammála hv. frsm. um það, að ég þarf ekki að vera óánægður með minn hlut, ef það á að metast eftir því, hvað aðrir hafa nú fengið fyrir sín kjördæmi yfirleitt. Og get ég þakkað hv. fjvn. fyrir þann skerf, sem mínu héraði er ætlaður til þeirra mála. En mín spurning var um það, eftir hvaða reglu þessu fé væri skipt í fjvn. Nú vil ég benda á, að það er ekki fullkomlega rétt, sem hv. frsm. hélt fram, að ég hefði fengið meira en aðrir. Fjvn. hefur rúmi. tvöfaldað allt framlag til vegagerða. En í stuttu máli sagt hefur það sama verið látið ganga yfir mitt kjördæmi í þessu efni eins og önnur héruð, en þetta er allt miðað við það, sem hæstv. ríkisstj. hafði lagt til um þessi mál. Í fyrra féllu niður úr fjárlagafrv. styrkir til vega, sem höfðu staðið þar undanfarin ár, og það er ekki þakkarvert, þó að nú séu aftur teknar upp fjárveitingar til þessara vega. — Nú vil ég benda á, að þó að ég tæki þennan samanburð á Rafnseyrarheiðarvegi, þá tók ég fram, að það væri síður en svo, að ég áliti, að of mikið væri lagt til þessa vegar. Það ætti heldur að tvöfaldast. En ég benti á, að nauðsynin væri þar ekki eins brýn eins og á því að leggja fram til vega á hinum stöðunum. Og af því að það kom fram hjá hv. 2. þm. N.-M., að ég hefði ekki farið þar með rétt mál, það væri ekki vegur fyrir 4 hreppa, sem ég talaði um, þá vil ég nú upplýsa það, að sá vegur er ekki fyrir 4, heldur 5 hreppa. Þetta er aðalsamgönguleið frá Patreksfirði, sem er með 700 íbúa, Rauðasandshrepp, Tálknafjarðarhrepp, Suðurfjarðahrepp og Dalahrepp. Ef þeir hreppar eiga að komast í samband við samgöngutæki það, sem er ferja yfir Breiðafjörð, þá verða íbúarnir að fara þessa leið. Þarna er því ekki að ræða um veg fyrir aðeins einn hrepp, sem þarf að leggja um þessa 16 km. fjallleið, sem ólagður er vegur yfir. En þessir 16 km. eiga að ganga fyrir öðrum vegum á landinu vegna þess, hve óhæfilega lengi er búið að vanrækja vegarlagningu þarna. Hvernig ætli mönnum fyndist það t. d., ef Keflavík væri ekki í vegasambandi við aðra staði á landinu, eða t. d. Akranes eða Borgarnes? Mundu þá hv. þm. leyfa sér að vera á móti því að koma þeim í akvegasamband? Mér þætti gaman að sjá þá menn, sem neita því, að einnig þessi byggðarlög í Barðastrandarsýslu eigi að komast í slíkt samband við aðalsamgöngurnar. Vegamálastjóri hefur oft sagt víð mig um þetta atriði: Ég verð að fara eftir flutningaþörfinni. — En hvað væri mikil flutningaþörfin yfir Vatnsskarð, ef enginn vegur væri í Húnavatnssýslu? Engin. Flutningaþörfin skapast við það að tengja héruðin við aðalsamgöngukerfið. En þó að Patreksfjörður t. d. sé ekki enn kominn í samband við vegakerfið, þá greiðir sá hreppur meiri skatt í ríkissjóð heldur en nokkur annar hreppur tilsvarandi á landinu. Ég mun því aldrei geta fellt mig við, eins og nú er komið vegamálum í Barðastrandarsýslu og eins og þau hafa verið vanrækt, að það hérað fái ekki annan og meiri skerf, miðað við t. d. fólksfjölda þar, heldur en önnur héruð, sem eru búin að fá sínum þörfum fullnægt. Sú sýsla á heimtingu á, að um þessa leið frá Brjánslæk til Patreksfjarðar sé lagður vegur, sem nauðsynlegur er til þess að bæta þar úr brýnni þörf, — og það ekki á 10 árum, heldur á einu ári. Það er sanngirniskrafa til hv. fjvn., sem í raun og veru hefur að mestu leyti fjárveitingarvaldið, og ber n. því að líta á þessi mál með fyllstu sanngirni.

Og svo í sambandi við þetta: Hvaða nauður rak til þess að ætla 250 þús. kr. í fjárl. til Krýsuvíkurvegarins? Hvaða börn svelta við hinn endann á þeim vegi? Eða er þessi fjárveiting kannske til þess, að hægt sé að fara með kjöt út í Hafnarfjarðarhraun?

Þá vil ég líka benda á, að hér hafa komið fram till. um hækkun á fjárframlögum til brúargerða. Hv. 10. landsk. mælti fyrir þeim og rökstuddi mjög vel sínar till. Og ég er honum alveg sammála um það, að það sé ekkert vit í því, þegar 2–3 ár liggja saman, að brúa þá aðeins eina þeirra í einu, ef hægt er að spara alveg sem svarar kostnaðinum við eina brú með því að brúa þær allar á einu og sama ári. Og viðvíkjandi brúargerðum þarna vestra má líka segja, að það er ekkert vit í því, þegar það mundi kosta 305 þús. kr. að brúa þrjár ár, ef þær væru brúaðar hver á sínum tíma, að brúa þær þá ekki allar í einu, ef með því má spara 35 þús. kr. Og ef nokkrar brúatill. á að taka til greina, þá á að samþ. þær brúargerðartill., sem ég hef komið fram með fyrir Barðstrendinga, af því að þörfin er þar svo mjög aðkallandi. Og hvernig getur hv. fjvn. farið að setja 32 þús. kr. í brú á Þingvöllum, þegar hún veit, að margar ár eru óbrúaðar í Barðastrandarsýslu, sem ómögulegt er að komast yfir fyrir menn né heldur með skepnur, hvað þá fyrir nokkra bíla? Ég hef farið líklega eins oft um Þingvöll og hver annar og ekki lent í neinum vandræðum vegna brúaskorts þar. Og ef ríkissjóður hefur nóg fé til þess að leggja 32 þús. kr. í óþarfa brú þar, þá er hann skyldugur til þess að leggja fram fé í nauðsynlegar brýr í þeim héruðum, sem hafa verið vanrækt í þessum efnum. Ég hef séð brýr hér brotnar upp, sem Barðstrendingar mundu gráta af gleði yfir að mega hafa hjá sér, ef því væri að heilsa. Ef fært hefur verið að eyða tugum þúsunda kr. í að brjóta upp brýr og breikka þær, þá vænti ég þess, að hv. fjvn. taki þessi mál öll til athugunar á ný og samþ. mínar sjálfsögðu till. um brúargerðir. — En þó vil ég sérstaklega minnast á, að till. um Rauðasandsveginn, um endurbætur á honum, er sú, sem langmest er aðkallandi, til þess að sá kostnaður, sem þar hefur verið lagður í vegargerð, komi að notum, því að það er hæpið að nota hestvagna og bíla á þessum vegi. Og vegamálastjóri hefur sagt, að sá vegur hafi verið lagður eins og raun ber vitni af því, að svo lítið fé hafi verið lagt til hans, að það hafi ekki verið hægt að senda menn til hans til að framkvæma verkið, sem vit höfðu á að leggja veginn. Er þetta fjármálaspeki!

Ég sé svo ekki ástæðu til að ræða þetta frekar, en vænti, að þau rök verði tekin gild, sem liggja fyrir í þessum málum.

En ég vil vona, að hæstv. forsrh. gefi sínum undirmönnum fyrirmæli um að haga betur orðum sínum í embættisnafni heldur en skrifstofustjórinn gerði í þessu tilfelli, sem um hefur verið rætt.