11.10.1943
Efri deild: 32. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 565 í B-deild Alþingistíðinda. (753)
91. mál, stríðsslysatrygging íslenzkra skipshafna
Forsrh. (Björn Þórðarson) :
Herra forseti. Um það efni, sem frv. þetta fjallar um, gilda nú fimm lagaboð. Tvenn eru frá 1940, tvenn frá 1941 og ein frá 1943.
Lagasetning þessi hefur til orðið eftir því, sem þörfin hefur kallað, og hafa ýmis atvik legið til þess, að lögin eru í svona mörgum liðum. Nokkur þeirra eru talin dálítið óljós og hafa valdið deilum, sem hafa komið fyrir dómstólana. Þessi óljósu atriði og fengin reynsla hafa gert nauðsynlegt að gera nokkra breytingu á hinum fyrri lögum. Um leið þótti rétt að fella þau í eina heild og skipa ákvæðum þeirra þannig niður, að þau yrðu betri til yfirlits og kvæðu skýrar á í einstökum atriðum en nú er.
Markið á milli lögboðinnar og samningsbundinnar tryggingar, sem 12. gr. fjallar um, hefur verið skýrt nánar. Enn fremur er í 17. gr. kveðið skýrt á um það, hvernig sé með tvöfalda lögboðna tryggingu.
Sé ég ekki ástæðu til að fara fleiri orðum um frv., bæði vegna þess, hvernig samsteypan er gerð, og þær breyt., sem gerðar hafa verið frá gildandi l., eru, að ég held, allvel skýrðar í athugasemdum, sem fylgja frv. Einnig má geta þess, að frv. hefur verið til athugunar hjá sjútvn. Alþingis. Vil ég leggja til, að frv. verði að lokinni þessari umr. vísað til þeirrar n.