21.04.1943
Efri deild: 6. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 572 í B-deild Alþingistíðinda. (776)
12. mál, bannsvæði herstjórnar
Atvmrh. (Vilhjálmur Þór):
Herra forseti. Út af fyrirspurnum hv. 9. landsk. þm. vil ég upplýsa í fyrsta lagi, að á s. l. ári var af þáv. ríkisstj. herstjórn Bandaríkjanna heimilað að taka til nota við hervarnir landsins allmikið landsvæði á Reykjanesi. Þetta var ekki gert fyrr en eftir að herstjórnin hafði fullvissað ríkisstj. um, að það væri nauðsynlegt vegna hervarna landsins. Þar sem þarna var um að ræða flugvallargerð, var af þáv. ríkisstj. ákveðið að láta fram fara eignarnám á því landi, sem þurfti, og var lagt fyrir sýslumann Gullbringu- og Kjósarsýslu að láta framkvæma það samkv. l. um flugmál landsins. Því miður hefur það ekki enn verið framkvæmt, og eftir því sem ég bezt veit, stafar það af því, að nokkrar breyt. hafa verið gerðar á stærð landsins og fleira, sem óvíst var í sambandi við það.
Núv. ríkisstj. var ljóst, að hraða þyrfti aðgerðum í þessu máli, og því var það skömmu eftir síðustu áramót, að utanrn. sneri sér til viðeigandi aðila og æskti þess, að gengið yrði tafarlaust frá landamerkjum þess svæðis, sem um var að ræða. Nokkru síðar barst ráðuneytinu uppdráttur af landinu, en af því að greinilegt var, að gengið var mjög nærri heimalöndum búandi manna, taldi ráðuneytið sjálfsagt að reyna að fá þetta bætt og hefur staðið í samningum síðan, með þeim árangri, að fyrir nokkrum dögum bárust ráðuneytinu nýir uppdrættir, sem eru að verulegu leyti hagstæðari fyrir búendur. Ég get upplýst t. d., að það hefur orðið samkomulag um, að bannsvæðið upp frá Höfnum og Innri-Njarðvík geti minnkað nokkuð og að áliti vegamálastjóra, sem er trúnaðarmaður ríkisstj. í þessum samningum, það mikið, að sauðfjáreigendur geti notfært sér vetrarbeit.
Í öðru lagi hefur herstjórnin undirgengizt að girða bannsvæðið fyrir næsta haust fjárheldri, fimmfaldri gaddavírsgirðingu svo og meðfram Keflavíkurvegi, Grindavíkurvegi, Hafnavegi og Sandgerðisvegi, þar sem þeir vegir liggja gegnum bannsvæðið. Á bannsvæðinu verður sauðfjárbeit heimiluð, en þó aðeins sumarbeit. Þó er ekki heimilt að smala innan svæðisins, en herstjórnin mun láta smala haust og vor og oftar, ef þurfa þykir. Einnig heimilar herstjórnin rekaeigendum umferð um fjörurnar innan bannsvæðisins, en slík umferð er þó ekki leyfð nema í fylgd með herverði.
Enn fremur mun herstjórnin taka að sér að kosta viðhald Hafnavegar, sem hefur verið mjög ábótavant, og að aka möl út fyrir bannsvæðið til vegagerðarinnar.
Ætlun ríkisstj. er, að innan fárra daga eða, –svo að varlega sé talað, — innan skamms tíma megi heppnast að ganga frá þessu máli og gera um það formlega samninga og að jafnhliða því verði tilefni til að taka það atriði, sem hv. 9. landsk. þm. minntist á, um tjón bænda og annarra þjóðfélagsþegna í námunda við þetta svæði, til athugunar.
Ríkisstj. hefur lagt áherzlu á að fá þetta mál leyst fyrir vorið og mun leggja kapp á, að lausnin verði á þá leið, að til sem minnstra óþæginda og tjóns verði bændum og öðrum, sem búa í nágrenni bannsvæðisins.
Vona ég, að hv. þm. láti sér nægja þessi svör.