21.04.1943
Neðri deild: 4. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 575 í B-deild Alþingistíðinda. (790)
12. mál, bannsvæði herstjórnar
Dómsmrh. (Einar Arnórsson) :
Mér eru ekki svo vel kunnugir málavextir á Hvalfjarðarströnd, og vildi ég taka fram, að það væri sjálfsagt betra, að hv. þm. Borgf. ræddi við mig um þetta í betra tómi en hér gefst tækifæri til, en ég vil segja, að það er skylda ráðuneytisins að hjálpa þeim, sem verða fyrir búsifjum af þessum hlutum. Eins og öllum er kunnugt, hefur forseti Bandaríkjanna heitið greiðslu fyrir tjón af hernaðaraðgerðum, og það tjón, sem bændur þarna kunna að bíða, fellur undir tjón af hernaðaraðgerðum. Það er rétt, að þeir leiti réttlætis og komi með kröfur sínar, sem yrði farið með eins og aðrar kröfur vegna tjóns af hernaðaraðgerðum.