24.09.1943
Efri deild: 24. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 584 í B-deild Alþingistíðinda. (827)
55. mál, happdrætti Laugarneskirkju
Bernharð Stefánsson:
Ég ætla nú ekki að lengja þessar umr. mikið, því ég sé enga ástæðu til þess, en ekki finnst mér hv. 5. þm. Reykv. (BrB) hafa getað sannfært mig um samræmið milli þess, sem hann segir vera skoðun sína í þessu máli og afstöðu sína til þessa frv., og þeirrar almennu skoðunar hans, að ríkið eigi ekki að styrkja ákveðin trúarbrögð. Þessi hv. þm. hefur verið eða þótzt vera ákaflega viðkvæmur fyrir því, að stjskr. sé fylgt, — og sem þm. ber honum skylda til að fylgja ákvæðum stjskr. Það þýðir ekki að þrátta um þetta. Það er stjskr. ákvæði. Ríkið á að styrkja lúterska kirkju, og vitanlega fylgir þar með að sjá um, að þeir landsmenn, sem tilheyra þjóðkirkjunni, geti orðið aðnjótandi guðsþjónustu hennar. Þetta er alveg tvímælalaust. Ég lýsti þessari skoðun í fyrri ræðu minni, og hv. 5. þm. Reykv. (BrB) lagði það svo út, að ég teldi, að ríkið væri skyldugt til þess að byggja Laugarneskirkju og Hallgrímskirkju, af því að l. um skiptingu Reykjavíkur í prestaköll hefði verið samþykkt. Ég vil ekki segja, að ríkið sé skyldugt til þess að byggja þessar kirkjur, en ríkið er skyldugt, meðan þessi stjskr. ákvæði eru í gildi, að vera því ekki til hindrunar, að söfnuðirnir geti séð sér fyrir húsi fyrir guðsþjónustur. Og þeir hafa valið þessa leið, að stofna til happdrættis.
Ég mun víkja að ummælum hv. þm. Barð. síðar, en ég vil benda á nú í sambandi við ummæli hans, að það er ekki bara um að ræða það, sem hér hefur verið talað um, að það sé síður æskilegt að fá þessa vinninga, ef á þeim hvíla allir venjulegir skattar, heldur líka samanburðurinn við önnur happdrætti hér. Allir vita, að happdrætti háskólans hefur notið þessara hlunninda í mörg ár, og úr því að söfnuðirnir lögðu út í happdrætti, stóðu þeir illa að vígi í samkeppni við happdrætti háskólans. Með þessu er ekki sagt, að það mætti ekki reka hér happdrætti. Báðar stofnanirnar gætu gert það, ef enginn hefði þessi hlunnindi, en úr því að einn hefur þennan rétt, er óhjákvæmilegt, að annar fái sama rétt.
Ég sé ekki ástæðu til að anza miklu því, sem hv. þm. Barð. var að spjalla um skattamál. Ég hélt, að á dagskrá væri happdrætti Laugarneskirkju, en ekki skattamál almennt. Hv. þm. talaði um, að ég gengi svo langt í þessu skattabrjálæði og viðurkenndi með þessu frv., að enginn gæti hætt tíu krónum, nema hann fengi tryggingu fyrir, að vinningur sinn væri skattfrjáls. Ég sagði í fyrri ræðu minni, að ég teldi ekki, að ekki væri töluverð þátttaka í happdrættinu, enda hefur komið í ljós, að mikið hefur selzt, þó að enn séu ekki til l. um, að vinningurinn sé skattfrjáls. Um happdrætti Hallgrímskirkju var raunar auglýst, að vinningurinn yrði skattfrjáls. Líklega hafa forgöngumennirnir tryggt sér fylgi alþm., en Laugarneskirkja hefur ekkert slíkt auglýst.
Annars er það skrítið, þegar verið er að tala um skattabrjálæði, og ég veit ekki almennilega, hvað meint er, líklega þó að hafa samþ. þá skatta, sem nú gilda. Jú, ég hef gert það, en flokkur hv. þm. Barð. hefur gert það líka, og formaður flokks hans hefur meira að segja kallað skattalögin „skattalögin sín“. Hv. þm. Barð. var víst ekki kominn á þ., þegar tekjuskattslögin voru samþ. 1942, sem allúr Sjálfstfl. samþ., en mig minnir, að hann samþ. t. d. verðlækkunarskattinn í vetur. (GJ: Nei, ég var á móti honum): A. m. k. samþ. hann margir af flokksmönnum hans, svo að hv. þm. ætti að líta sér nær. Það er stundum eins og hv. þm. Barð. haldi, að ég hafi sett gildandi skattal.
Hv. frsm. meiri hl. útskýrði, að ekki væri hægt í frv., sem nú er verið að fjalla um, að gera ráð fyrir því, hvað kynni að vera samþ. á Alþ. Það er staðreynd, að verðlækkunarskatturinn gilti ekki fyrir tekjur ársins 1943, heldur aðeins 1942, og þó að fyrir Alþ. liggi frv. um eignaaukaskatt, er ekki hægt að segja, hvort það verður að l., og ekki hægt að setja í frv., hvort undanþiggja eigi happdrættisvinninga því, sem er alls ekki í l.
Að síðustu vil ég árétta það, að ég álít ekki höfuðatriðið í þessu máli neitt skattabrjálæði, heldur hitt, sem ég nefndi áðan, að aðalhappdrættið í landinu hefur þennan rétt nú þegar.