24.09.1943
Efri deild: 24. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 586 í B-deild Alþingistíðinda. (829)
55. mál, happdrætti Laugarneskirkju
Frsm. minni hl. (Brynjólfur Bjarnason):
Herra forseti. Ég veit ekki, hvernig farið er að því í Bandaríkjunum, þar sem engin þjóðkirkja er, eða í Frakklandi, þar sem ríki og kirkja eru aðskilin. Þetta hefur Rússland bjargazt, þar sem aðskilin eru ríki og kirkja og algert trúfrelsi. Það væri víst engin voðaleg hætta á ferðum, þó að við færum út á þá braut.
Hv. 1. þm. Reykv. gekk svo langt að halda því fram, að ég hefði að vísu heimild til að hafa einkaskoðun í þessu máli, en ég hefði enga heimild til að halda því fram, sem ég hélt fram, einkamál mitt kæmi ekki öðrum við, því að skoðun mín bryti í bág við stjórnarskrána. Það segir í stjórnarskránni, að það beri að styðja kirkjuna, hina evangelisk-lútersku kirkju, og hv. þm. heldur því fram, að það beri að styðja hana á allan hátt, hvernig sem á stendur, og m. a. með þessu skattfrelsi, og engin einkaskoðun komi þar málinu við. M. ö. o.: þm. lítur svo á, að söfnuðirnir geti ákveðið að byggja eins margar kirkjur og þeim sýnist, hafa eins marga presta og þeim sýnist og launa þá eins hátt og þeim sýnist —, ríkið sé skyldugt til að veita þeim þetta allt saman: Þetta er einkennileg skoðun, enda meinar hv. þm. þetta ekki, og rök hans falla því um sjálf sig. Ég veit aftur á móti, og það mun hv. þm. viðurkenna, að það er á valdi Alþ. í hvert sinn, að hve miklu leyti það vill styðja kirkjuna, launa prestana mikið og veita mikið fé til að reisa fyrir kirkjur. Þá er það og á valdi Alþ., hvort það skattfrelsi, sem hér er beðið um, skuli veitt. Við erum að deila um málið, af því að það er á okkar valdi að samþ. eða fella það, og úr því að ég álít það ekki aðeins óþarft að styrkja þetta sérstaka trúarfélag af almannafé, heldur beinlínis skaðlegt og rangt, vil ég, að stuðningurinn verði sem allra minnstur. Hv. þm. sagði í ræðu sinni, að hér væri um ótvíræðan rétt að ræða, því að ríkinu væri skylt að sjá um, að söfnuðirnir hefðu aðgang að guðshúsi. Ég vil spyrja, hverjir hafi ekki aðgang að kirkju. (MJ: Ekki allir í sínum söfnuði). Fyrr mættu nú vera ósköpin að ómaka fólk alla leið niður á Kirkjutorg!
Hv. þm. segir, að það sé mjög algengt, að menn reyni að bregða fæti fyrir mál með því að nefna annað, sem sé meira aðkallandi. Það er alveg rétt, en þm. hlýtur að skilja, að fé ríkissjóðs er takmarkað og að ekki er hægt að sinna öllum fjárkröfum til þarfra og nauðsynlegra hluta. Ég veit, að þessi hv. þm. eins og aðrir verður oft að greiða atkv. móti till. um fjárveitingar til hluta, sem hann þó telur þarflega og jafnvel nauðsynlega. Hann verður í hvert sinn að vega og meta, hvað nauðsynlegast sé.
Í þessu efni, sem hér er um að ræða, höfum við andstæðar skoðanir. Hann heldur því fram, að hér sé um brýna nauðsyn að ræða, en ég tel málið alóþarft. Það er þetta, sem á milli ber. Frá mínu sjónarmiði er fáránlegt, að ríkið styrki þetta, þar sem lög eru beinlínis brotin á þegnum landsins vegna skorts á húsnæði til skóla og sjúkrahúsa. Hv. þm. segir að vísu, að þetta þurfi ekki að rekast á fjáröflun til spítala og skóla, en vitanlega rekst það á, af því að fé er takmarkað.
Fleiri gætu viljað stofna til happdrættis, ef þeir hefðu vissu fyrir því, að vinningarnir væru skattfrjálsir. Félagi berklasjúklinga leikur mjög hugur á að koma upp vinnuhæli fyrir berklaveikt fólk. Ég nefni þetta til dæmis, af því að það er mikið nauðsynjamál. Spurningin er: Hver á að ganga fyrir, hvar er þörfin mest? Á þessu byggist skoðanamunur okkar og engu öðru.
Hv. þm. var að minnast á, að kirkjan hefði fyrr á öldum haft með höndum fræðslumál og heilbrigðismál. Það kemur ekki málinu við, hvað kirkjan hefur illu heilli haft með höndum á fyrri öldum. Hún hefur haldið uppi spítölum í áróðursskyni, og er slæmt, þegar ríkið er svo illa á vegi statt, að það þurfi að láta kirkjuna eina um heilbrigðismálin.
Hv. 6. þm. Reykv. hélt því fram, að þetta loforð hefði verið veitt og væri ekki annað að gera en samþ. það. Álítur hv. þm., að slíkar aðferðir séu til fyrirmyndar? Það er ærið óviðkunnanlegt, þegar verið er að ræða mál í þingsölunum, að vængstýfa umr. með því, að þm. séu búnir að binda sig fyrir fram, svo að ekki stoði neinar umr. Ég álít, að enda þótt þm. gefi slíkar skuldbindingar utan þings án þess að hugsa málið, þá hafi þeir fyrst og fremst skuldbindingar gagnvart þjóðinni í heild, og séu ekki bundnir af slíkum vilyrðum, sem einstakir menn hafa fengið þá til að gefa sér til handa.