24.09.1943
Efri deild: 24. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 590 í B-deild Alþingistíðinda. (847)
56. mál, happdrætti Hallgrímskirkju
Frsm. meiri hl. (Magnús Jónsson):
Herra forseti. Eftir langar og ýtarlegar umræður um næsta mál hér á undan, sem var sama eðlis, get ég sparað mér að mæla fyrir þessu frv. sérstaklega, og vona því, að umræður verði stuttar.
Ég vil aðeins segja, að munurinn á þessu máli er sá, að sá söfnuður, sem hér um ræðir, hefur ekki enn hafið smíð á kirkjubyggingu sinni.
Á hinn bóginn er það kunnugt, að söfnuður þessi ráðgerir að koma upp mikilli kirkjubyggingu og hefur í því skyni stofnað til happdrættis. Vinningurinn í happdrætti þessu er hús, sem söfnuðurinn hefur keypt, og hef ég séð því slegið fram í blöðunum, að hús þetta væri um 240 þús. kr. virði. Það er því augljóst, þar sem vinningurinn er svona stór, að það mundi skerða vinninginn að miklum mun og um leið draga úr möguleikum til fjáröflunar í þessu skyni, ef undanþága frá álagningu tekjuskatts og útsvars á vinning í happdrætti þessu verður ekki veitt. Ég vil því fyrir hönd meiri hl. mæla með, að frv. þetta verði samþ.