27.09.1943
Neðri deild: 23. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 592 í B-deild Alþingistíðinda. (863)

53. mál, sandgræðsla og hefting sandfoks

Frsm. (Sigurður Guðnason):

Herra forseti. Landbn. hefur haft þetta mál til athugunar og er sammála um að leggja til, að frv. verði samþ. með smábreyt. Eins og hv. flm., 2. þm. Rang., tók fram, er þetta frv. flutt vegna þess, að l. um sandgræðslu og heftingu sandfoks gera ráð fyrir því, að hreppstjórar hafi ávallt eftirlit með sandgræðslugirðingunum. En það hefur komið fyrir, að einmitt sami maður, sem hefur átt að hafa eftirlit með sandgræðslugirðingu, hefur átt hluta af því landi, sem innan sandgræðslugirðingarinnar er. Landbn. er sammála hv. flm. frv. um, að það sé sjálfsagt, þegar svo stendur á, að um slík tilfelli sé skipað fyrir með sérstökum lagaákvæðum, eins og gert er ráð fyrir í frv.

En þessi brtt. frá landbn. er eingöngu um það, að bætt verði við 1. gr. frv. ákvæði um það, að sá maður, sem sýslumaður skipar í stað þess hreppstjóra, sem er hlutaðeigandi í hinu friðaða landi, eigi ekki heldur þar hlut að máli. Brtt. er því á þá leið, að á eftir orðunum „skipar sýslumaður annan“ komi: sem ekki á þar hlut að máli.

Landbn. leggur til, að frv. verði samþ. með þessari breyt.