20.09.1943
Neðri deild: 19. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 614 í B-deild Alþingistíðinda. (891)
48. mál, verðlag
Einar Olgeirsson:
Ég vona, að sessunautur hv. forseta hafi veitt þessum síðustu orðum forseta athygli og láti sér segjast.
Ég gat ekki betur heyrt af því, sem hv. þm. V.-Sk. sagði áðan, en það stæði til, ef þetta frv. yrði samþ., að banna S. Í. S., Mjólkursamsöluna, Búnaðarfélag Íslands og hvers konar félagsskap bænda á Íslandi. Hann sagði beinlínis, að með frv. þessu væri verið að taka ákvörðunarrétt bænda af þeim. Út frá þessu sjónarmiði er það ekkert smáræði, sem stefnt er að! Þá held ég, út af þeim stóryrðum, sem hann notaði, að hann ætti að gera sér grein fyrir því, hver sá grundvöllur er, sem hann byggir staðhæfingar sínar á. Það lítur út fyrir, eftir orðum hans að dæma, að hér sé verið að þvinga bændur á ófyrirleitinn hátt og svipta þá frjálsræði.
En nú skulum við athuga staðreyndirnar. Fulltrúar verkamannásamtakanna og launþega semja við bændur. Bændur hafa þarna eins marga fulltrúa og neytendur. Þeir hafa aðstöðu til að segja nei og þá um leið vald til að hindra, að samningar séu gerðir. Bændur hafa þarna verið að gera samkomulag, en ekki afsala sér neinum réttindum.
Um hvað er svo samið? Að kaupgjald bænda sé þannig greitt, að þegar þeir afhenda vöruna, fái þeir ákveðið verð á ákveðnum stað. Og hver er sá staður? Það er húsveggur samsölunnar, áður en mjólkin fer inn í mjólkurhreinsunarstöðina. Það er ákveðið í samningnum, hvað bændur skuli fá á þessum stað. Það er þeirra kaupgjald.
Hvað er nú það næsta, sem fyrir liggur? Það er að sjá um að selja þessa vöru. Allt, sem kemur til viðbótar, á neytandinn að borga. Er það þá ekki neytandans, að það sé sem ódýrast? Er ekki ábyrgð bóndans búin? Tekur ekki ábyrgð neytandans við?
Þarna hefur verið samið um að setja mörkin, — við húsvegginn. Nú er það á ábyrgð neytenda að taka við vörunni og koma henni til sjálfra sín. Það er sem sé svo fjarri því, að verið sé að ganga á rétt bænda, að þeir hafa þarna gert frjálsan samning. Aftur á móti er eftir að afnema óréttinn, sem neytendur hafa verið beittir, — það er eftir að afnema einræðisskipulagið og láta samvinnuna koma í staðinn.
Það er annað atriði, sem hv. þm. V.-Sk. virðist ekki vita. Það hefur tíðkazt í mörgum löndum, — þ. á m. hér á Íslandi, — að neytendur hafa myndað samtök um að kaupa lífsnauðsynjar sínar. Þessi samtök eru annars nefnd samvinnufélög og hreyfingin samvinnuhreyfing. Þessir neytendur skipa sér saman í félagshóp til þess að tryggja sér kaup á sem ódýrustum og beztum vörum. Það hefur verið svo hér á Íslandi, að neytendur hafa verið sviptir þessum rétti með l. og samvinnufélög þeirra bönnuð og neytendum meinað að semja um kaup á slíkum vörum sem t. d. mjólk. Það hefur verið settur á smáeinræðisklíkur, rétturinn til að kaupa, setja í búðir og afhenda mjólkina, en neytendur verið sviptir réttinum til að ráða innkaupum og dreifingu hennar. Með því, að þetta fyrirkomulag sé afnumið, verður tekin upp frjáls samvinna neytenda og bænda. Bændur skila mjólkinni að húsveggnum. Þá taka neytendurnir við eða þau samtök, sem þeir vilja mynda. Það er því verið að tryggja rétt neytenda að sama skapi og rétt bænda. Þarna er verið að koma af stað samvinnu þessara tveggja aðila, — þessara tveggja höfuðaðila í landinu. Það er sjálfsagt að neytendur hafi sama rétt til að hafa samvinnufélög og bændur.
Hv. þm. V.-Sk. sagði í sambandi við þetta, að ef verkamenn ætluðu að fara að haga sér svona þrælslega og ekki unna öðrum réttinda, þá skyldi athugað, hvort þeim yrði unnt réttinda af annarra hálfu. Þannig auglýsir hann sig, þessi hv. róttæki, frjálslyndi þm., sem aldrei hefur viljað sviptá verkamenn neinum réttindum. Hann var með hótanir um það, að ef verkamenn og bændur færu að semja, þá skyldi hann sýna verklýðshreyfingunni í tvo heimana og hún skyldi gæta sín, áður en hún egndi annan eins mann á móti sér!
Sannleikurinn er sá, að á síðustu fjórum árum hefur þessi hv. þm. tvisvar í þessum sölum gengið fram fyrir skjöldu til að svipta verkamenn samningsrétti sínum. Hann hefur gengið fram fyrir skjöldu um að lögbjóða kaup verkamanna og um að semja og samþ. einhver þau svívirðilegustu þrælal., sem nokkurn tíma hafa verið í gildi á Íslandi. Svo kemur þessi tandurhreini engill og segir, að sér skuli vera að mæta, ef bændur og neytendur ætli að fara að semja frjálsmannlega um mjólkurverðið. Ég er hræddur um, að hann ætti að venja sig á að hugsa, áður en hann talar, og athuga sína eigin fortíð og hver líkindi eru til, að verkamenn taki tillit til hótana hans.
Nú væri kannske skiljanlegt, að hv. þm. V.-Sk. væri úrillur og óánægður, ef hann teldi, að í samningunum um kaupgjald bænda hefði verið gengið svo hart fram af fulltrúum neytenda, að vesalings bændurnir hefðu orðið að slaka til, svo að úr þessu hefðu orðið einhverjir eymdarsamningar eða a. m. k. ætti að sýna bændum ósanngirni. Þá væri nú ekki úr vegi að athuga, hvort svo hefur verið og þeim sýnd ósanngirni af sex manna n. Þá er fyrst að geta þess, að til grundvallar ákvörðunum sex manna n. voru lagðir búreikningar bænda sjálfra. Þessi hv. þm., sem talar svo mikið um ósanngirni í garð bænda, ætti að athuga búreikninga þeirra sjálfur. Ég hins vegar hef þá trú, að búreikningarnir taki mjög mikið tillit til þeirrar afkomu, sem bændum er nauðsynleg, — sízt minna en sanngjarnt er, — og að þar sem þeir eru lagðir til grundvallar, þá fáist mun betri útkoma fyrir afkomu bænda en annarra vinnandi stétta. Ég fullyrði, að með því að leggja búreikningana til grundvallar sé bændum tryggð allt að því 1/4 betri afkoma en ef farið er eftir núgildandi opinberri vísitölu. Og ég vil segja það, að ég álít ekki nema rétt að taka tillit til búreikninga í þessu sambandi, sérstaklega þar sem það er lífsnauðsyn, að bændur og neytendur komist að samkomulagi og það frjálsu samkomulagi.
En þegar búið var að búa til grundvöllinn og bera saman meðaltekjur manna í landinu, mun hafa komið í ljós, að það mundi mega reikna með 13 þús. kr. árstekjum að meðaltali, — og við vitum, að það er fyrir ofan allt meðallag, sem viðgengst utan Reykjavíkur. Þessar 13 þús. kr. tryggðu því bændum betri afkomu en verkamannastéttinni í landinu — utan Reykjavíkur. Látum svo vera. Það er allt í lagi líka. En þegar komin er þessi niðurstaða, þá kemur fram krafa um, að bætt sé við kr. 1500.00 og að nauðsynlegar árstekjur bænda séu áætlaðar kr. 14500.00. Það leit út fyrir, að n. spryngi, ef fulltrúar neytenda gengju ekki að þessu. Það var jafnvel rétt að ganga að þessu. En eftir þetta virðist manni ekki ástæða til þess, að hér sé komið fram og verið að væna fulltrúa verkamanna um það, að þeir vilji ekki sýna bændum fulla sanngirni. Ég veit ekki til þess, að framsóknarmenn hafi sýnt verkamannastéttinni neina slíka tillitssemi sem fulltrúar verkamanna í sex manna n. sýndu bændum. Ég veit ekki betur en framsóknarmenn hafi nú í 4 ár vegið í sama knérunn í þessum efnum. Þeir hafa knúið í gegn þrælalög til þess að reyna að hnekkja afkomu verkamanna. Og það var gert á sama tíma sem stórgróðinn fékk að vaxa. Það situr þess vegna ekki á hv. þm. V.-Sk. að tala mikið um réttlætið, eins og hann gerði í sinni síðustu ræðu. Verkamennirnir íslenzku þora að mæta frammi fyrir íslenzkum bændum, þeir hafa hingað til sýnt þeim fyllstu sanngirni. En hvers konar menn eru það þá, sem dirfast að koma fram með þá fjarstæðu, að verkamenn hafi sýnt bændum hina mestu ósanngirni? Það eru menn, sem vilja spilla á milli bænda og verkamanna. — Ég held þess vegna, að það væri bezt fyrir hv. þm. V.-Sk. að tala sem minnst um réttlætið í sambandi við þessi mál. Ég minnist þess, að í fyrra, þegar fjhn. þessarar hv. d. ræddi þennan kafla dýrtíðarl., þá var meiri hl. n. alveg til með það að vera með því að kjöt- og mjólkurverðlagsn. yrðu lagðar niður. En þetta var þó ekki gert, vegna þess að tveir menn í n. vildu halda þessu áfram eins og það hefur verið. En meiri hl. n. taldi samt mjólkur- og kjötl. óþörf. Enn fremur er rétt að vekja athygli á því, að almennt var miðað við það, þegar þessi l. voru samþ. (þ. e. dýrtíðarl.), að verkefni mjólkur- og kjötverðlagsn. væri í rauninni lokið. Mjólkurverðlagsn. hefur því með því að setja mjólkina upp í kr. 1.70 í rauninni brotið þvert á móti öllu því, sem gert var ráð fyrir í sex manna n., og þvert á móti því, sem ætlazt var til í fyrra með setningu dýrtíðarl.
Ég hefði annars nokkra tilhneigingu til þess að spyrja hv. þm. V.-Sk. spjörunum úr viðvíkjandi framkvæmdum mjólkursölun. á undanförnum árum. Það er greinilega mælt svo fyrir í 19. gr. mjólkurl.: „Útsöluverð skal á hverjum tíma reiknað út, eftir því sem við verður komið, eftir vísitölum, er sýni sem gleggst framleiðslukostnað mjólkurinnar og kostnað við meðferð hennar, dreifingu og sölu.“ Enn fremur í 20. gr.: „Jafnóðum og verðjöfnunarsvæði eru ákveðin, skal finna verðstuðla, er gildi fyrir þau.“ — Þessi reglugerð hefur gilt í átta ár, og mjólkursölun. lætur væntanlega leggja fram þá vísitölu, sem farið hefur verið eftir þann tíma, sem hún hefur starfað.
Enn fremur stendur í 22. gr.: „Verðlagning á mjólk og rjóma og öðrum mjólkurvörum skal fara fram eins oft og mjólkursölun. ákveður, að jafnaði eigi oftar en einu sinni á ári.“ — Mig langar nú til þess að spyrja í þessu sambandi: Hafa þessar síðustu ráðstafanir mjólkurverðlagsn. verið gerðar, — án þess að mjólkursölun. hafi óskað eftir og að hve miklu leyti hefur mjólkursölun. verið kvödd þar til nú? Og síðast, en ekki sízt: Hvernig er það með sjálfa tilveru mjólkurverðlagsn.? Hvenær var hún seinast skipuð, og eftir hvaða formi er núverandi tilvera hannar byggð? — Það væri gaman að fá upplýsingar viðvíkjandi þessu máli einmitt nú, þegar mjólkurverðlagsn. gerist svo djörf að ákveða einræðislegt verð á mjólkinni þvert ofan í þá samninga, sem sex manna n. hefur gert.
Það er nauðsynlegt, að því frjálsa samkomulagi, sem bændur og neytendur hafa gert, verði haldið áfram. Það er þess vegna alveg sjálfsagt, að þessar skaðlegu n. verði afnumdar sem fyrst. Sá vilji var fyrir hendi í fyrra hér á hv. Alþ., og það var einnig ætlazt til þess í sex manna n., að þessar n. yrðu afnumdar. Ég býst við, að fram komi einhverjar upplýsingar um starfsemi mjólkurverðlagsn., og mun ég þá svara því, eftir því sem við á.