20.09.1943
Neðri deild: 19. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 617 í B-deild Alþingistíðinda. (892)

48. mál, verðlag

Sveinbjörn Högnason:

Þetta var nú nokkuð langur lestur hjá hv. 2. þm. Reykv., en frekar var nú lítið á honum að græða, eins og hv. þdm. munu hafa tekið eftir. Það virtist svo sem þessi hv. þm. væri að berjast við eintómar vindmyllur, og slík vinnubrögð verða sjaldan að miklu gagni. Ég hygg, að það hafi verið fáir, sem botnuðu í því, hvað maðurinn var að fara. Ég fyrir mitt leyti gat ekki skilið nema nokkurn hluta af ræðu hans. Hann var að deila á mig fyrir það, að ég hefði talið fulltrúa verkamanna í sex manna n. vera ósanngjarna. Ég segi það eins og það er, ég veit ekkert, hvað þessi hv. þm. er að fara í þessu efni. Ég minntist ekkert á það í fyrri ræðu minni, hvernig vinnubrögðin hefðu verið í sex manna n., né heldur, hvað varð að samkomulagi. Ég hef þessum hv. þm. því engu að svara. Öll ræða hans var ein botnleysa, eins og ég gæti hugsað mér slétturnar austur í Rússlandi.

Hv. 8. þm. Reykv. sagði, að ég mundi vera methafi í því að fara með blekkingar hér í d., og get ég látið mér það vel lynda frá hans hendi, því að ég er sannfærður um það, þegar slíkir menn fara að kvarta yfir blekkingum, að þá er það vegna þess, hvað þeir eru komnir í mikinn vanda sjálfir með það að beita sínum venjulegu vinnubrögðum. Ég skal nú færa þessum orðum mínum nokkurn stað. Þessi hv. þm. taldi, að sex manna n. hefði aðeins átt að semja um það verð, sem bændur seldu fyrir á innlendum markaði. Ég segi, að þetta séu ósannindi. Í 4. gr. l. um dýrtíðarráðstafanir stendur: „Skipa skal sex manna n., er finni grundvöll fyrir vísitölu framleiðslukostnaðar landbúnaðarafurða, er fara skal eftir við ákvörðun verðs landbúnaðarvara, og hlutfall milli verðlags landbúnaðarvara og kaupgjalds stéttarfélaga, er miðist við það, að heildartekjur þeirra, er vinna að landbúnaði, verði í sem nánustu samræmi við tekjur annarra vinnandi stétta. Skal í því sambandi tekið tillit til þess verðs, sem fæst fyrir útfluttar landbúnaðarafurðir.“ — Þetta hafa allir þessir þm. samþ., þetta er gefið út og prentað, en þó kemur þessi hv. þm. og segir, að sex manna n. hafi eingöngu miðað við verð, sem bændur fá á innlendum markaði. Er hægt að ganga lengra í ósannindum?

Þá sagði hann, að sex manna n. hefði komizt að þeirri niðurstöðu, að kaupgjaldið, sem bændur ættu að fá, væri 13 þús. kr. Þó væri það sennilega of hátt, en n. hefði samt fallizt á að hafa þetta 14500 kr. Ég hef hér nál. og niðurstöður vísitölun. og vil leyfa mér að lesa nokkurn kafla úr því, með leyfi hæstv. forseta:

„Nefndin hefur í þessu skyni aflað sér ýmissa upplýsinga frá Alþýðusambandi Íslands um kaupgjald víðs vegar á landinu. Enn fremur hefur hún látið taka upp úr skattskýrslum Reykjavíkur fyrir s. l. ár upplýsingar um tekjur 226 verkamanna, sjómanna og iðnaðarmanna. Vegna þess, hve áhættuþóknun sjómanna er sérstaks eðlis, enda ekki skattskyld nema að hálfu, þá var þess gætt að taka ekki með sjómenn, sem höfðu áhættuþóknun. Úrtak þetta var talið nægilega stórt til þess að gefa rétta mynd af tekjum þessara stétta samkvæmt skattaframtölunum. Tekjur þessara stétta eru þess eðlis, að þær hafa litla möguleika til þess að falla undan skatti, því að þær eru fyrir vinnu í annarra þjónustu og því gefnar upp af vinnuveitanda til skattyfirvaldanna. Einnig lét nefndin taka upp tekjur tilsvarandi stétta úr skattaframtölum í nokkrum kaupstöðum og kauptúnum. Með því að enn er aðeins lítill hluti af skýrslum þessum kominn til Ríkisskattanefndar, varð nefndin að láta sér nægja 3 kauptún með yfir 1000 íbúa (Ísafjörð, Húsavík og Vestmannaeyjar) og önnur 3 með 300–1000 manns (Bolungavík, Hólmavík og Seyðisfjörð), en hins vegar voru í þeim kauptúnum teknir upp allir þeir, er til greina virtust koma í þessu sambandi. Framvegis verður tíminn væntanlega ekki eins naumur, og mætti þá gera þessar skýrslur víðtækari, ef ástæða þykir til. Var svo tekið meðaltal af skýrslum þessum, vegið eftir mannfjölda í þessum þrem flokkum kaupstaða og kauptúna.

Meðaltekjuupphæð sú, sem fékkst þannig úr skýrslunum ásamt vísitöluframfærslu fyrir tímabilið september 1942 til ágúst 1943, var 15 500 kr. að meðtalinni lítils háttar útjöfnun, sem gerð var eftir áætlun, vegna þess að skýrslurnar voru takmarkaðri en æskilegt þótti.“

Þetta eru nú niðurstöður sex manna n. Svo kemur þessi hv. þm. og segir, að niðurstaðan hafi verið 13 þús. kr. En hið sanna er, að meðaltalið hefur verið 15 500 kr. Ég vil nú spyrja: Hvernig stendur á því, að menn grípa til slíkra blekkinga? Það er vegna þess, að það er lífsnauðsyn fyrir þennan flokk (Sósfl.), að ekki sé hægt að halda áfram aðgerðum í þessum málum.

Svona skeyti eins og þetta frv. sýna það bezt, hver tilgangur þessara manna er. Hann er sá einn að reyna að koma af stað úlfúð og illindum á milli neytenda og framleiðenda og reyna að sjá um það, að ekki geti orðið samkomulag á milli þessara aðila. Það er sá raunalegi sannleiki í stjórnmálum okkar hin síðari ár, að hægt er að reka slíka pólitík, vegna þess að það er ekki nema lítið brot af þjóðinni, sem sér sönnunargögnin eins og þau liggja fyrir í hverju máli. Þess vegna er hægt að halda úti blöðum eins og t. d. „Þjóðviljanum“ og öðrum slíkum. Mig undrar ekkert, þó að menn, sem standa á bak við slíkar blekkingar sem þær, sem hafa birzt í blöðum kommúnista undanfarið, setji hljóða, þegar reynt er að fletta ofan af þeim.

Hv. 8. þm. Reykv. var að tala um, að það væri nauðsynlegt að afnema þessar pólitísku n., til þess að hægt væri að koma á samkomulagi milli neytenda og framleiðenda. En ég vil spyrja: Hvernig hafa þessar n. verið skipaðar? Hafa þessar n. eingöngu verið skipaðar af bændum? Hafa neytendur ekki haft sína fulltrúa í þessum verðlagsn.? Halda þessir hv. þm., að það sé hægt að leyna því fjölda manna, hvernig þessar n. hafa verið skipaðar? Ef menn vilja hafa samkomulag um þessi mál, þá eru ekki til ákjósanlegri stofnanir í því skyni en einmitt þessar n., sem skipaðar hafa verið bæði af framleiðendum og neytendum.

Við teljum hins vegar réttlátt, að bændur sjálfir geti ákveðið verð á sinni vöru ekki síður en verkamenn ákveða verð á sinni vinnu. Þess vegna hefur verið gerð tilraun til þess að halda uppi samkomulagi á milli þessara aðila nú um nokkur ár, og sú tilraun hefur borið mikinn árangur.

Þá spurðist hv. þm. fyrir um það, hvernig háttað væri viðskiptum Kaupfélags Árnesinga og Mjólkursamsölunnar. Þetta get ég upplýst. Þau viðskipti eru engin. Ég veit ekki til, að Mjólkursamsalan og Kaupfélag Árnesinga hafi haft nein viðskipti. En það, sem hv. þm. sagði um þessar stofnanir, hefur sjálfsagt verið sagt í þeim tilgangi að reyna að vekja tortryggni í hugum manna gagnvart þeim. En það þekkja sjálfsagt allir, hver er baráttuaðferð þessara manna gagnvart slíkum stofnunum sem þessum. Hún er sú að ráðast á þessi samtök bændanna og reyna að sundra þeim til þess að geta síðar lagt þau undir sig. Þetta er sjálfsagt ágæt aðferð, eftir því sem Stalín og slíkir einræðisherrar mundu hugsa. Það sé um að gera að hafa allt nógu sundrað, til þess að hægt sé að gera slík samtök að engu.

Þetta er auðlært, og sannast hér, að það er auðlærð ill danska. Eins er auðlærð ill pólitík. Þá sagði hv. 8. þm. Reykv., að með samkomulagi sex manna n. hefði verið sagt þetta, að fyrir þær vörur, sem bændur framleiði, skuli þeir fá það verð, sem sanngjarnt er. Ég sé þetta hvergi í samkomulaginu. Ef bændur færu fram á þetta, segir hann, að það samsvaraði því, að verkamenn heimtuðu af vinnuveitendum, að þeir útveguðu þeim vinnu og kaup allt árið. Þetta sýnir, hve frámunalega lítið vit þessi hv. þm. hefur á sveitabúskap, ef hann telur þetta sambærilegt við visst, árlegt kaup. Tökum t. d. sumarið í sumar. Hvernig fer það með bændur; er brugðizt hefur undirstaða framleiðslunnar, heyskapurinn. Það er vissulega fjöldi bænda, sem fær ekki þær tekjur, sem áætlaðar eru með hinu fasta verðlagi á framleiðsluvörum þeirra. Margir fá ekki helminginn af þeirri upphæð og verða að skerða bústofn sinn stórlega. Þó er þetta ekki nema algengasta áfallið í landbúnaðinum, sem dregið getur úr framleiðslugetu hans.

Ef visst verðlag á landbúnaðarafurðum ætti að vera sambærilegt við trygga vinnu og kaup verkamanna, þá þyrfti bústofn bænda jafnframt að vera tryggður gegn áföllum af veðurfari og hverju öðru.

Þá var eitt atriði í ræðu hv. 2. þm. Reykv. Hann sagði, að neytendum væri bannað að mynda samvinnufélög. Ég veit nú ekki betur en þeir hafi stofnað Kaupfélag Reykjavíkur. Er hægt að segja, að það sé bannað að verzla í samvinnufélögum eða stofna þau, þótt einkasala sé á einstaka vörutegundum? Það tekur því ekki að fara að eyða orðum að þessu einu sinni, það er svo langt sótt að grípa til svona málflutnings. Þótt sölufélag sé starfandi með mjólkurafurðir, er það ekkert bann við samtökum neytenda um samvinnufélög almennt.

Nú eru sósíalistar farnir að bjóða byrginn með því að hóta að taka mjólkurstöðina. Bændur hafa lagt fram milljónir til hennar. (EOl: Hvaðan eru þær teknar?). Þær eru teknar af þeirra peningum og ekki sóttar til Rússlands. (EOl: Þær eru sóttar í vasa neytendanna í Reykjavík). Nú fyrst eru kommúnistar að sjá, að koma þarf upp góðri mjólkurstöð í bænum, og belgja sig mikið út af því, þegar aðrir eru að verða búnir með verkið. Nú ætla þeir að eigna sér árangurinn. — Já. Það gæti sennilega verið ágætt fyrir atvinnurekendur hér í bæ og víðar að hafa þá aðstöðu að geta tekið skrifstofur verkamanna og ráðið yfir þeim. Ársgjald verkamanna til félaga sinna, má segja, að tekið sé af atvinnurekendum með sama rétti og því er haldið fram, að peningar bænda til mjólkurstöðvarinnar séu teknir af neytendum. Það ætti eftir því að láta atvinnurekendur eingöngu reka vinnumiðlunarskrifstofu og skrifstofur stéttarfélaga. (SigfS: Dagsbrún rekur enga vinnumiðlunarskrifstofu). Sannleikurinn er sá, að allir þurfa að hafa aðstöðu til að reka sín félagssamtök, bændur sem verkamenn.

Þá skal ég víkja aðeins lítillega að lofsöng hv. 2. þm. Reykv. um góðvild fulltrúa verkamanna í sex manna n. gagnvart bændum, er þeir féllust á að búa bændum sömu kjör og verkamenn hafa. Ég skal játa, að þetta var vel hugsað, en mér þykir rétt að segja það eins og er, að það var jafnvel meira en búizt var við af sumum þessara manna, enda á strax að fara að hlaupa út undan sér í þessu máli, því að hvaða gagn er bændum að því, að reiknuð sé út sambærileg aðstaða þeirra við verkamenn, ef síðan á að binda hið útreiknaða afurðaverð þeirra við innanlandsmarkaðinn einan og skammta þeim aðeins lítinn hluta þess, sem lofað var? Sér ekki hver maður, að þeir bera minna úr býtum, ef flytja þarf eitthvað út af afurðunum? Þetta er því tóm blekking, ef þannig á að halda á málunum eftir á.

Hitt vil ég segja, að það er ekki rétt, að bændur hafi aldrei hliðrað til fyrir verkamönnum. Ég hygg, að öll félagsmálalöggjöf undanfarinna ára hafi komizt á fyrir tilstilli bændafulltrúanna eða með fylgi þeirra. Það er því hlægilegt að heyra fulltrúa verkamanna hrósa sér af því, hve miklu þeir hafi til vegar komið til hagsbóta verkalýðnum hér á Alþ., þótt þeir viti, að engin l. hafa hér verið samþ. til hagsbóta fyrir verkamenn nema með fylgi bændanna. Svo segja þeir, að bændur séu fjandsamlegir verkamönnum. Þetta er þó naumast broslegt, það er grátlegt.

Tökum t. d. vökulögin, sem fulltrúar verkamanna guma svo mjög af. Er þau voru samþ., munu verkamenn hafa átt einn fulltrúa af 42 á þingi. Við erum ekkert að telja þetta eftir, síður en svo. Við erum aðeins að benda á, að þetta hefur verið sá eðlilegi gangur lífsins, bæði hér og annars staðar, að þeir hafa staðið saman og hjálpazt að, sem verst hafa verið settir í þjóðfélögunum. Og ég er ekki með neinar hótanir, þótt ég segi við fulltrúa verkamanna: Ef þið ætlið að ganga út á þá braut að unna engum réttar nema verkamönnum, þá mun það verða til hins mesta hnekkis fyrir þá, sem þið hugðust vinna fyrir.