21.09.1943
Neðri deild: 20. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 629 í B-deild Alþingistíðinda. (900)

48. mál, verðlag

Flm. (Áki Jakobsson):

Herra forseti. Það er ein spurning, sem hv. þm. N.-M. svaraði ekki. Hvernig eru viðskipti innbyrðis milli Mjólkursamsölunnar og Kaupfél. Árnesinga? (PZ: Engin). Það er ágætt að fá upplýsingar um það, hvað kostar að flytja mjólkina, en neytendur í Rvík þurfa að vita, hve mikið af flutningskostnaði Kaupfél. Árnesinga er greitt með of háum flutningsgjöldum á mjólk til Rvíkur. Þessu gekk hv. þm. N.-M. rækilega fram hjá.

Það kom fram hjá hv. þm., hvað neytendur ætluðu að gera, hvort þeir ætluðu að kaupa mjólkina, hvort sem hún væri mátulega mikil eða of mikil. Auðvitað ætla þeir ekki að kaupa meiri mjólk en þörf er fyrir, og það er ekki heldur ætlunin, að ríkissjóður eigi að tryggja kaup á öllu, hvað sem þörfinni í landinu líður. Það þarf að reikna út, hvað neyzlan er mikil, og er auðvitað ekkert vit í að láta framleiða mjólk, sem enginn neytandi er að. Það er offramleiðsla á kjöti á erlendan markað í landinu, og þarf að greiða stórfé með því. Það er sagt, að það sé af stríðsástæðum, og það er það máske að sumu leyti, og þess vegna vill Sósíalistaflokkurinn samþ. nokkrar bætur til bráðabirgða.

Það vantar ekki, að mjólkurverðlagsn. leggur fram ýtarlegar upplýsingar, þegar hún hækkar mjólkina. Hitt dreg ég í efa, að fskj. gefi rétta hugmynd um, hvað hefur verið greitt. Þess vegna þarf „krítíska“ endurskoðun á rekstri fyrirtækisins. Mjólkurverðlagsn. hefur alltaf útbúið nýtt „skema“ við hverja verðhækkun, og með sex manna samkomulaginu er stefnt að því að koma í veg fyrir það.

Það er vitað mál, að tekjurnar eru reiknaðar svo, að að meðaltali 1942 eru þær taldar 13 þús. kr. hjá verkamönnum, en þegar búið er að bæta vísitölunni við, eru þær orðnar 15500 kr.

En það er annað stórt atriði, sem ég er sannfærður um, að vísitölun. hefur sézt yfir. Meðaltekjur verkamanna eru ekki kr. 14500.00, þær eru lægri. Þegar þetta meðaltal var reiknað, var of lítið tekið úr hópi verkamanna, en of mikið úr flokki iðnaðarmanna. Verður því meðaltalið af tekjum verkamanna hærra en meðalkaup verkamanna úti um land. Þetta atriði álít ég að hafi verið mistök. Afleiðingarnar eru þær, að þetta gerir útkomuna fyrir bóndann hagstæðari, og er þetta það deiluatriði, sem hér er verið að þjarka um. Þó finnst mér ekki ástæða til að harma það, þótt íslenzkir bændur fái bætt kjör og búi við hagsæld á þessum tímum. Það, sem mestu máli skiptir, er það samkomulag n., að nú er búið að finna grundvöll til þess að meta verðmæti landbúnaðarframleiðslunnar, svo að nú geta þessir pólitísku spekúlantar Framsfl. ekki framar komið upp úlfúð í þessu skyni. Nú er kominn allsherjargrundvöllur, og finnst mér það vera þýðingarmesti vinningur sex manna n. Ef ætlazt er til þess, að n. sjái um verð á útfluttum afurðum, er það fjarstæða og nær ekki nokkurri átt. N. er hugsuð sem samninganefnd. Niðurstöður n. eru því ekki bindandi, nema því aðeins, að allir í n. séu sammála.

Ef leggja á þann skilning í þetta samkomulag, að greiða eigi fé úr ríkissjóði þannig, að bændur fái sama verð fyrir kjötið, sem við seljum lægra verði á erlendum markaði, eins og þeir fá fyrir það á innlendum markaði, er það önnur fjarstæðan. Greiðslur þessar lenda ósjálfrátt á bæjarbúum, því að skattarnir verða fyrst og fremst teknir af þeim. Þetta gerbreytir afstöðunni, en hefur farið í skugga við aðalatriði þessa máls, sem eru, eins og ég gat um áðan, að nú er búið að ná samkomulagi um verð á innlendum landbúnaðarafurðum. En ef þetta samkomulag er þannig, að pumpa á tugum milljóna úr ríkissjóði til þess að borga uppbætur til bænda fyrir kjötið, sem selt er til útlanda, á kostnað bæjarbúa, þá eru allar forsendur fallnar undan þessu samkomulagi, og þetta frv., sem hér liggur fyrir, er því skilyrði fyrir því, að samkomulag sexmenninganna verði ekki rofið og gerðir þeirra að engu gerðar. Ef fulltrúar bænda verða ekki á sama máli um þetta munu verkamannasamtökin svara á viðeigandi hátt.