21.09.1943
Neðri deild: 20. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 630 í B-deild Alþingistíðinda. (901)
48. mál, verðlag
Sveinbjörn Högnason:
Það eru í raun og veru aðeins fá atriði, sem standa orðið eftir af fullyrðingum frsm., og finnst mér ekki þörf að taka margt til athugunar. Þó er það tvennt í ræðu hans, sem ég vildi benda á með nokkrum orðum.
Viðskipti Kaupfélags Árnesinga og Mjólkursamsölunnar hafa engin verið, en hann talar um, að flutningsgjöldin séu allverulega þungur baggi á Reykvíkingum. Þegar sýnt er fram á, hversu þetta gjald er lágt, þá sagði hann, að ekki sé víst, að nokkuð sé að marka upplýsingar viðvíkjandi sams konar reikningum, hægt væri að gefa út falsaða reikninga og þetta gæti allt verið lygi. Hvaða hugsun liggur á bak við þetta? (ÁkJ: Því ekki að leggja fram reikningana?). Reikningarnir hafa verið opinberlega birtir í blöðum og gefnir út á hverju ári. Það er velkomið, að flm. komi upp í Mjólkursamsölu og skoði reikningana, þótt ég viti, að það þýði ekkert að leggja plögg upp í hendur á svona manni, því að ef staðreyndirnar kæmu sér ekki vel, mundi hann segja þær vera lygi. Ég hef aldrei þekkt annan eins hugsunarhátt hjá neinum manni. Þetta kemur mér þó ekki á óvart, eftir því, sem ég hef heyrt um ýmis viðskipti við hv. þm. Siglf.
Hann talar um, að mjólkurflutningarnir austan yfir Hellisheiði séu svo dýrir, að þeir séu of þungur baggi á Reykvíkingum. Í verðlagsákvæðum mjólkurlaganna segir, að verðmismuninn til bænda skuli greiða eftir því, hvað flutningskostnaður er mikill. Ágreiningurinn er um það, hvað flutningsgjöldin eiga að vera mikil, og hef ég oft heyrt, að þau væru of lág, en aldrei fyrr, að þau væru of há. Þetta getur hann leitað sér upplýsinga um, því að ekkert fyrirtæki hefur haldið þessum flutningum uppi eins ódýrt og einmitt Kaupfélag Árnesinga, og er þetta auðvitað neytendum í hag. Ekkert fyrirtæki hefði getað tekið þetta að sér fyrir jafnlágt verð, því að þetta er stórt fyrirtæki og flytur vörur sínar austur með sömu bifreiðum. Engum landflutningum hér á landi er haldið uppi eins ódýrt sem þessum, og þó er það skylda að halda þeim uppi daglega allan ársins hring, hvernig sem færi er. Það rekst því óþægilega á, þegar sumir koma og segja, að reikningarnir séu falsaðir, af því að þeir séu reiknaðir of lágt, en aðrir segja, að reikningarnir séu falsaðir að því leyti, að flutningsgjöldin séu reiknuð of hátt. Þetta minnir mig á söguna, sem menn kannast við, um bóndann og asnann. Ég skal svo ekki fara fleiri orðum um þetta atriði.
En um 13000 kr., sem flm. var að tala um, þá væri enginn vandi að fá upplýsingar um það hjá n., hvort búnaðarmálastjóri væri „kúskaður“ til að segja það, sem er ekki satt. Er þetta aðferð kommúnista? Ég ætla bara að segja hv. þm. það, að þetta er ekki vaninn hjá okkur framsóknarmönnum, þó að þetta muni vera reglan hjá kommúnistum. Við þekkjum. ekki þessa aðferð. Þessi aðferð er hjá einræðissinnum, en ekki hjá þeim, sem halda vilja uppi lýðræðinu í landinu.
Þá hef ég ekki fleira að svara þessum hv. þm. að svo stöddu.