07.10.1943
Neðri deild: 28. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 632 í B-deild Alþingistíðinda. (905)

48. mál, verðlag

Frsm. (Jón Pálmason):

Herra forseti. Svo sem flestum þm. mun nú kunnugt, þá hefur hæstv. landbn. orðið sammála um að breyta frv. að formi til. Hv. 1. landsk. skrifar þó undir með fyrirvara, og mun ég ekki ræða það að sinni, enda mun hann gera grein fyrir sinni afstöðu. En nái þetta frv. samþykkt í Nd., og ég vænti, að svo verði, þá hygg ég, að allar áhyggjur um, að það nái ekki tilgangi sínum, séu óþarfar.