01.11.1943
Efri deild: 42. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 639 í B-deild Alþingistíðinda. (932)

39. mál, vegalög

Frsm. (Gísli Jónsson):

Herra forseti. N. hefur athugað þetta frv., bæði eins og það var, þegar það kom frá flm. (á þskj. 44), og eins, eftir að því hafði verið breytt (á þskj. 167), og leggur n. til, að það verði samþ. óbreytt, eins og það kom hingað til d. Það var dálítið rætt um það í n., hvort það væri nauðsynlegt að setja inn breyt. um það, að sérstök hreppsfélög gætu notið þessara hlunninda, og að athuguðu máli leit n. svo á, að það væri innanhéraðsmál á milli hreppa og sýslun., og væri því ekki nauðsynlegt að setja um það sérstakt lagaákvæði.

N. vill því mæla með því, að frv. verði samþ. óbreytt, eins og það kom frá neðri deild.