13.09.1943
Efri deild: 16. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 641 í B-deild Alþingistíðinda. (939)
33. mál, ríkisframfærsla sjúkra manna og örkumla
Frsm. (Haraldur Guðmundsson) :
Ég er þakklátur hv. þm. Barð. fyrir ábendingu hans. Ég mun athuga þetta atriði, því að vitanlega á það að vera tryggt, að sú regla haldist, að kostnaður holdsveikissjúklinga sé greiddur að fullu.
Ég vil bæta því við, ef hv. þm. er kannske ekki að öllu leyti ljóst, hvað alvarlegur langvinnur sjúkdómur er, að í reglugerð frá 20. jan. 1938 stendur, með leyfi hæstv. forseta:
„Alvarlegir, langvinnir (krónískir) sjúkdómar eru fyrst og fremst þeir sjúkdómar, sem sérstaklega eru nefndir í l. nr. 78 23. júní 1936, um ríkisframfærslu sjúkra manna og örkumla (berklaveiki, holdsveiki, kynsjúkdómar, fávitaháttur, geðveiki og eiturlyfjanautn), svo og aðrir sjúkdómar, sem að jafnaði haga sér þannig, að sjúklingarnir þarfnast sífelldrar eða margendurtekinnar sjúkrahúss- eða hælisvistar eða stöðugrar meiri háttar læknisþjónustu.“
Aftan við þessa reglugerð er að finna leiðbeiningar til lækna, og ég hugsa, að sett verði reglugerð af heilbrigðisstj. til skilgreiningar með hliðsjón af upptalningunni í þessari reglugerð.