15.09.1943
Neðri deild: 16. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 645 í B-deild Alþingistíðinda. (957)

43. mál, lendingarbætur í Hnífsdal

Flm. (Sigurður Bjarnason):

Herra forseti. Frv. þetta um lendingarbætur í Hnífsdal er flutt samkv. beiðni hreppsnefndar Eyrarhrepps. Eins og kunnugt er, hefur undanfarið verið unnið að því í Hnífsdal að lengja bryggju, sem þar var fyrir hendi. Til þeirra framkvæmda hefur hreppsnefnd Eyrarhrepps orðið að taka veruleg lán. Og vegna óhappa, sem fyrir komu á s. l. sumri, eru líkur fyrir því, að allverulegt lán þurfi að taka til viðbótar til þessara framkvæmda. Tölur þær, sem nefndar eru í 1. og 2. gr. frv., eru í samræmi við áætlun vitamálastjóra, sem yfirumsjón hafði með verkinu.

Ég sé ekki ástæðu til að fjölyrða um þetta frv. á þessu stigi málsins. Það er að flestu leyti í samræmi við hinn venjulega ramma að l. um lendingarbætur. Ef til vill er ástæða til að benda á lítið atriði í 5. gr. Þar er gert ráð fyrir, að með framkvæmd lendingarmála fari 5 menn. Sá háttur mun hafa verið hafður í allmörgum l. um lendingarbætur, að þessir menn væru aðeins 3. Ég hef tekið ákvæðið um 5 menn, af því að í hafnarnefnd, sem undanfarin ár hefur verið kosin af hreppsnefnd Eyrarhrepps samkv. hafnarreglugerð fyrir þorpið, hafa setið 5 menn. Og frá þorpsbúum sjálfum og hreppsnefndinni hef ég fengið bending um, að frekar væri óskað eftir þessari breyt., ef Alþ. sæi ekkert sérstakt á móti. Að endingu óska ég, að málinu verði vísað til sjútvn.