07.10.1943
Efri deild: 30. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 650 í B-deild Alþingistíðinda. (977)
66. mál, hafnargerð á Dalvík
Frsm. (Gísli Jónsson) :
Herra forseti. Sjútvn. hefur athugað þetta frv. og borið saman við gildandi lög um hafnargerð í Dalvík.
Frv. felur í sér þá breyt., að fjárframlag ríkissjóðs verði hækkað úr 150 þús. kr. í 480 þús. kr. og að ábyrgð ríkissjóðs verði hækkuð úr. 150 þús. kr. í 720 þús. kr.
Það mætti kannske þykja dálítið undarlegt, að í einu og sama héraði séu tvenns konar hafnarlög, en svo er ekki, eins og sjá má, þegar málið hefur verið rannsakað.
Sjútvn. telur það ekki verkefni sitt að setja þröskuld í veg þeirra bæjarfélaga, sem vilja koma upp hjá sér mannvirkjum eins og þeim, sem hér er um að ræða, ef þau vilja leggja á sig þær fjárhagslegu byrðar, sem þeim hljóta að fylgja, og nægilegt fé er fyrir hendi til að hrinda framkvæmdunum af stað. Leggur n. því til, að frv. verði samþ. óbreytt.