08.02.1945
Neðri deild: 124. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 740 í B-deild Alþingistíðinda. (1029)

278. mál, samkomudagur reglulegs Alþingis 1945

Ingólfur Jónsson:

Herra forseti. Frv. það, sem hér liggur fyrir, fjallar um að fresta samkomudegi reglulegs Alþ. Eftir núgildandi l. skal þing koma. saman eigi síðar en 15. febrúar ár hvert. Það er mín skoðun, að þetta sé óheppilegt á slíkum tímum sem þessum, þegar miklar sveiflur eru á verði og öll viðskipti óviss. En jafnvel á normaltíma mun síðari helmingur ársins betur fallinn til þinghalds. Ég skal ekki vera margorður um þetta mál, en vænti, að um þetta atriði geti allir háttv. þm. verið sammála. Allshn. hefur haft þetta mál til meðferðar, en ekki orðið sammála um afgreiðslu þess. Frsm. beggja hluta hafa talað, og ber þeim allmikið á milli. Ég legg til, að hér verði farinn millivegur, sem ég vænti, að báðir aðilar geti fallizt á. Það hlýtur að vera öllum ljóst, að Alþ. getur ekki komið síðar saman en 1. sept.

Samkvæmt frv. getur ríkisstj. kallað þing saman fyrr en þar er gert ráð fyrir, og er það nokkur afsökun, en mér virðist það óþingleg aðferð að gera ráð fyrir samkomudegi, sem vitað er, að getur ekki komið til mála.

Þegar þingi var frestað á s.l. vetri, var líkt ástatt og nú er. Ég bar þá fram till. um, að samkomudegi Alþ. yrði ekki frestað lengur en til 1. sept. Og brtt. mín og nokkurra annarra hv. þm. er í samræmi við það. Okkur datt í hug, að það yrði e.t.v. fullseint, og höfðum látið okkur detta í hug 15. ágúst. En ég held, að ef hæstv. Alþ. vill leysa afurðasölumálin, þá eigi hálfur mánuður að vera nægilegur tími til þess að komast til botns í þeim málum.

Hv. síðasti ræðumaður, 1. þm. Árn., leiddi nokkur rök að því áðan, hvers vegna Alþ. yrði að koma saman a.m.k. fyrir 15. sept., af því að þá er verðlagstímabilið, sem nú gildir, út runnið. Þá er heimildin til niðurgreiðslu á landbúnaðarafuruðum, sem seldar eru innan lands, úr gildi fallin og tryggingin fyrir útflutningsuppbótunum einnig úr gildi fallin. Og þá á sláturstíðin að hefjast í síðasta lagi. Og þá verður, sem sagt, að vera komið ákveðið verð á kjötið, til þess að ekki komist allt í öngþveiti í verðlagsmálum landsins. Ég veit, að hæstv. ríkisstj. og þeir aðrir, sem vilja samþ. þetta frv. óbreytt, segja: Það kemur aldrei til þess, að ríkisstj. kalli ekki þingið saman fyrir þann tíma, fyrst þetta er alveg nauðsynlegt. En þá má einnig taka brtt. okkar til greina sem leiðréttingu á frv. Því að það virðist ekki sæmandi að ákveða, að Alþ. komi saman 1. okt., þegar það er á vitorði hæstv. ríkisstj. og Alþ., að ekki er mögulegt að draga samkomudaginn svo lengi. Þessi brtt. okkar ætti þess vegna að skoðast sem leiðrétting við frv. Á þeim tíma, sem við nú lifum á, getur margt orðið til þess, að nauðsynlegt sé að kalla þingið saman miklu fyrr. En um það er ekkert hægt að segja nú, og það er ekki hægt að spá neinu um það, þó að það sé eðlilegt og rétt að hafa augun opin fyrir þeim möguleika. En samkv. frv. getur ríkisstj. eða forseti Íslands kallað þingið saman miklu fyrr. Sú brtt., sem ég, ásamt nokkrum öðrum hv. þm., ber fram, miðast við óbreytta tíma. Hún er alveg jafnnauðsynleg, þótt tímarnir séu óbreyttir, vegna þess að þó að ástandið verði ekki breytt frá því, sem er, þá er sú staðreynd alltaf fyrir hendi, að fyrir 15. sept. verður þingið að hafa komið saman, til þess að koma sér saman um það, hvaða verð á að vera á landbúnaðarafurðum fyrir næsta verðlagstímabil. Og það er sannarlega ekki of langur tími fyrir Alþ., sem ekki hefur nú orð á sér fyrir að vera sérlega fljótt að koma sér saman um ágreiningsmál, þótt hálfur mánuður sé ætlaður því til þess í þessu sambandi. Og segi ég þetta með tilliti til þess, sem reyndin varð á síðasta ári, er ákveða skyldi verð landbúnaðarafurða. — Ég geri þess vegna ráð fyrir því, að hæstv. ríkisstj. og meiri hl. Alþ. og yfirleitt stuðningsmenn stj., eftir að hafa athugað málið og gert sér ljóst, að ekki er mögulegt að draga samkomudaginn til 1. okt., þá greiði þeir atkv. með brtt. okkar, sem þeir mega gjarnan skoða sem nauðsynlega leiðréttingu á frv. Og fyrr en ég sé, hvernig þessari brtt. verður tekið af meiri hl. d., sé ég ekki ástæðu til að fjölyrða meira um þetta atriði.