08.02.1945
Neðri deild: 124. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 750 í B-deild Alþingistíðinda. (1036)
278. mál, samkomudagur reglulegs Alþingis 1945
Páll Zóphóníasson:
Herra forseti. — Mér þykir leiðinlegt, að þessi hæstv. ráðh., sem var að setjast niður, skuli ekki vera búinn að læra að fara með rétt mál. Hann er að tala um, að það standi í 1. gr., að þ. skuli koma saman „eigi síðar“ en 1. okt. Það stendur hvergi „eigi síðar“ (Samgmrh.: Þetta er útúrsnúningur.) Hann sagði, að það stæði „eigi síðar“, en það er ekki stafur um það. Ég vona, að hann dragi ekki lengi vondan dám af þeim félagsskap, sem hann er nú kominn í.
Ég ætla þá, með leyfi hæstv. forseta, að lesa upp úr grg. fyrir þessu frv.: „Eru til þess ýmsar ástæður (að frv. er lagt fram), þ. á m. sú, að þ. hefur nú starfað óslitið að heita má síðan 2. sept. og lokið þeim störfum, sem aðkallandi eru í bili.“
Ég nefndi svo nokkur mál, sem liggja fyrir þ. og ekki er lokið, og spurði hæstv. ráðh. og hæstv. stj., hvort þessi mál væru ekki aðkallandi. Ég hef ekkert svar fengið. Ég fæ ekki annað svar hjá hæstv. ráðh. en að þ. muni sitja svo lengi núna, að þessi mál verði afgr. Það er allt annað mál. Það er sagt í grg., að búið sé að ljúka aðkallandi málum, svo að það mætti víst slíta þ. á morgun. Nú veit ég, hvaða mál eru eftir, og ég spyr aftur: Eru þau mál ekki aðkallandi? Á að svíkja launamálið? Eru skattamálin ekki aðkallandi? Þarf ekki að afgr. dýrtíðarmálin, eða er stj. að skrökva að þ., þegar hún hefur þessi ummæli í grg.? Ég talaði ekkert um, að það hafi staðið í frv., sem hæstv. forsrh. sagði í ræðu sinni, að þm. myndu yfirleitt óska þess að þurfa ekki að sitja lengur á þ. Það stendur ekki neitt um þetta í frv. Hann talaði um það sem eina aðalástæðu fyrir þessu og gerði þar engan greinarmun á því, sem þm. persónulega óskuðu, og því, sem væri skylda þeirra. Þetta segi ég, því að ég sé, að bæði hann og aðrir þekkja ekki mun á persónulegum óskum sínum og skyldu sinni. Þegar þm. vantar í 21 skipti af 42 við nafnakall, eins og dæmi eru til, þá þekkja þeir ekki mun á persónulegum óskum sínum og skyldum.
Hæstv. forsrh. áleit, að hann væri að gera þm. til geðs með því að láta þ. koma sem seinast saman, til þess að þeir þurfi sem stytzt að sitja þ. Þetta getur hann gert þeim persónulega til geðs, en ef þeir finna, að þeir hafa skyldur að rækja, þá meta þeir þær meir en persónulegar óskir, sem kunna að gera greinarmun á þessu tvennu, en það sjá allir nú, hafi þeir ekki vitað það áður, að það kann hæstv. forsrh. ekki. Ég óska þess, að hæstv. forsrh. komist í skilning um þetta, að það er munur á persónulegum óskum þm. og þeim skyldum, sem þeir hafa tekið að sér.