10.01.1945
Neðri deild: 101. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 680 í B-deild Alþingistíðinda. (105)

217. mál, skipun læknishéraða

Frsm. (Gunnar Thoroddsen):

Herra forseti. Þetta frv. er flutt af ríkisstj. í Ed. og samið af mþn. um læknaskipan o.fl. Frv. fjallar um nokkrar breyt. á l., sem samþ. voru nýlega, eða l. nr. 8 1944, um breyt. á læknaskipunarl. Var með þeim l. m.a. stofnað Selfosshérað. Þá voru stofnuð á Austurlandi Bakkagerðishérað og Egilsstaðahérað. Breytt var Hafnarfjarðar- og Álafosshéraði, stofnað Suður-Snæfellsneshérað og stofnað Borðeyrarhérað. Jafnframt var ákveðið í l., að þau skyldu felld inn í meginmál læknaskipunarl. frá 1932, auk annarra breyt., sem gerðar voru á þeim l., og þau gefin út á ný. Þessi l. áttu svo að öðlast gildi 1. jan. 1945. Mþn. í læknaskipunarmálinu þótti sýnt um nokkur þessi atriði, að ekki væri rétt að láta þau koma til framkvæmda strax um síðustu áramót. Stj. flutti því frv. nokkru fyrir áramót, en því miður hefur ekki unnizt tími til að afgr. það fyrir þann tíma, sem ákveðið var, að l. frá í vor öðluðust gildi.

Efni þessa stjórnarfrv. er þríþætt. Fyrsta atriðið fjallar um Suður-Snæfellsneshérað, sem nær yfir Miklaholtshrepp, Staðarsveit og Breiðavíkurhrepp. Er þar um tvær breyt. að ræða. Önnur er sú að velja héraðinu heiti. í samræmi við önnur læknishéruð er það miðað við læknissetrið. Þegar l. voru sett í fyrravor, var ekki unnt að ákveða læknissetur þá þegar. Nú er í ráði, að það verði á Staðarstað, og er héraðið þá nefnt í samræmi við það Staðarhérað. Hin breyt. er sú, að þetta komi ekki til framkvæmda fyrr en héraðið verður skipað, og er átt við það, að meðan ekki er til læknisbústaður, sé tilgangslaust að auglýsa það til umsóknar. Hins vegar er verið að undirbúa byggingu læknisbústaðar. Frv. fer því fram á að leysa heilbrigðisstjórnina undan þeirri skyldu að auglýsa héraðið laust til umsóknar fyrr en þetta er komið í kring. Ég skal taka það fram í sambandi við Staðarhérað, eins og kunnugt er áður, að það er skipað íbúum 3 hreppa. 2 þeirra eru langfjölmennastir, Staðarsveit og Breiðavíkurhreppur, og eru þeir hreppar eindregið fylgjandi málinu, en í Miklaholtshreppi eru mjög skiptar skoðanir um þetta. Í þessu héraði er því yfirgnæfandi meiri hluti íbúanna, sem sótzt hefur eftir þessu.

Að því er snertir Borðeyrarhérað, hefur komið í ljós síðan, að af 3 hreppum í því héraði hafa 2 gert samþykkt þess efnis, að þeir óski ekki eftir þessari héraðsstofnun. Einn hefur hins vegar ekki látið í ljós álit sitt, en full ástæða er til að ætla, að íbúar þess hrepps hafi yfirleitt áhuga fyrir málinu. Íbúatala þessara hreppa er svo misjöfn, að í þessum 2 hreppum, sem mótmæltu, er aðeins tæplega helmingur af íbúum héraðsins. Vegna þessa eru mjög skiptar skoðanir um málið, og þótti mþn. rétt að fresta framkvæmd þessa atriðis, unz lokið væri þeirri endurskoðun, sem stendur yfir í læknisskipunarmálunum. Þetta er orðað svo í frv., 2. gr. l., „þó um Borðeyrarhérað kemur ekki til framkvæmda meðan yfir stendur endurskoðun læknishéraðaskipunar samkv. þál. frá 11. marz 1944.“ Nú kynni einhver að vilja skoða þetta svo, að um leið og mþn. hafi skilað áliti sínu, kæmi þetta hérað af sjálfu sér í gildi, en ég vil taka skýrt fram, að tilgangurinn með þessu orðalagi er sá, að á meðan Alþ. hefur til meðferðar þessa endurskoðun, sem stofnað var til með þáltill., þá komi þetta hérað ekki til álita. Ég býst við, þegar mþn. hefur lokið störfum, þá samþykki hún nýja löggjöf um þetta efni, og Borðeyrarhérað kemur að sjálfsögðu ekki til framkvæmda á meðan. Ég vil taka þetta fram sem skýringaratriði um 2. gr. frv.

Viðvíkjandi 3, atriðinu vil ég segja, að til þess er ætlazt með l. frá því í fyrravor, að þessum l. sé öllum steypt saman og gefin út að nýju sem læknisskipunarl. Nú þykir n. óheppilegt, að l. séu gefin út, þar sem yfir stendur þessi endurskoðun, sem væntanlega verður lokið síðari hluta ársins, þannig að frv. verði lagt fyrir haustþingið. Það þótti því eðlilegt að fresta samsteypul. þangað til. Þetta felst í síðari málsgrein 3. gr. frv., að ein málsgr. 8. gr. l. falli niður.

Eins og ég tók fram, var ætlazt til, að þetta frv. næði samþykki og staðfestingu fyrir 1, jan., en það gat hins vegar ekki orðið. Ef frv. verður samþ. eins og það er, táknar það því, að það öðlast ekki gildi fyrr en 3 mánuðum eftir birtingu þess, m.ö.o. að þessi 2 héruð, Borðeyrarhérað og Staðarhérað, hafa þá verið til á pappírnum um nokkurra mánaða skeið. Landlæknir telur þetta óheppilegt við ýmiss konar skýrslur, sem hann og aðrir þurfa að semja, og hefur því eindregið óskað eftir við heilbrigðis- og félagsmálan., að hún léti þetta frv. gilda frá 1. jan. 1945 og að þessu leyti aftur fyrir sig. Þó að n. sé að vísu ekki ljúft að fara inn á þá braut, taldi hún þetta ekki skipta svo ýkjamiklu máli, að ástæða væri til að ganga á móti óskum landlæknis og rugla fyrir honum skýrslum, og féllst á að bera fram brtt. í nál., sem segir, að l. þessi skuli gilda frá 1. jan. 1945. Ég skal taka fram, að fyrir því eru að vísu ýmis fordæmi, að l. séu látin gilda aftur fyrir sig, en það stafar af þessari ástæðu, sem ég hef greint.