09.02.1945
Efri deild: 123. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 756 í B-deild Alþingistíðinda. (1052)
278. mál, samkomudagur reglulegs Alþingis 1945
Forsrh. (Ólafur Thors):
Hv. 1. þm. S.-M. flutti hér alllanga ræðu um þetta frv., sem fyrir liggur til umr., mjög hógværa málefnalega, og þar sem hann fór fram á frekari upplýsingar en fram hafa komið, finnst mér sjálfsagt að verða við þeim tilmælum. Ég þarf ekki að verja til þess löngum tíma, því að í þessu máli eru engin launbrögð í frammi höfð, ekkert, sem hulið þarf að vera, þó að mér skildist hv. þm. vilja gefa í skyn, að sú staðreynd, að stj. hefði sótt fast að fá þingi frestað til 1. okt., hlyti að byggjast á einhverjum sérstökum bollaleggingum, sem hún hefði í frammi haft og stjórnarandstaðan vissi ekki full skil á. Ég skal upplýsa það, alveg eins og það liggur fyrir, að stj. er ljóst, að enda þótt þetta frv. verði samþ., þá getur það vel farið svo, að hún telji sig tilneydda að kveðja saman þing 1. sept. eða jafnvel fyrr. Það geta mörg óvænt atvik kallað á þörf fyrir samankvaðningu Alþ., og það verður að sjálfsögðu á hverjum tíma, og einnig þá .að þessu sinni, að fara undir mat stj., á hverju hún telur þörf. Það hefur verið rætt um það, einnig af þessum hv. þm., eftir því sem mér hefur skilizt, enda þótt ég ætti þess ekki kost að hlýða á alla ræðu hans, að það gengi úr gildi löggjöf um verðlagsákvörðun landbúnaðarafurða og uppbótargreiðslur innanlands, og af þeim ástæðum kynni nauður alveg sérstaklega að reka til að kalla saman þing fyrr en 1. okt. Einnig þetta kann að verða svo í reyndinni, en stj. hefur þá ályktað á þá leið, að samkvæmt ákvæði frv. verði hægt að fullnægja þeirri þörf, ef hún á þeim tíma verður jafnaðkallandi og stjórnarandstaðan og kannske fleiri óttast nú, að hún muni verða. Menn kunna þá að spyrja: Úr því að stj. viðurkennir þetta, hvers vegna er hún þá að beita sér á móti yfirlýstum vilja sumra þeirra manna, sem ekki beinlínis styðja stj., en hafa verið og eru í samstarfi við einn af stjórnarfl. og vilja í þessu efni koma fram áformum stjórnarandstöðunnar? Ástæðan er einföld. Hún er sú, að ef þess er nokkur kostur, en úr því sker ekkert nema reynslan, þá óskar stj. þess, og telur sig þar í fullu samræmi við vilja ekki eingöngu þeirra þm., sem styðja stj., heldur líka út af fyrir sig í samræmi við alla þm., að komast hjá því að kveðja þá til samstarfs fyrr en þennan tiltekna dag, sem stj. sýnist, að sé miðaður við síðustu forvöð og eðlilegt þinghald, og ætti þingi þá að vera lokið fyrir áramót, og er þá gengið út frá, að tími hefði unnizt til undirbúnings mála með öðrum hætti en verið hefur að undanförnu. Hv. þm. vék að því, að ef stj. óskaði eftir vinnufriði, þá hefði sá kostur verið nær að ljúka þessu þingi löngu fyrr en raun yrði á, og gat þess í því sambandi, að stjórnarandstaðan hefði ekki haft sig í frammi um það að tefja þingstörf. En þrátt fyrir það að stjórnarandstaðan hafi ekki haft í frammi nein óvenjuleg brögð um það að tef ja störf þingsins svo, að þau hafi af þeim ástæðum dregizt svo úr hófi, sem nú er orðið, þá er vitað, að rætur þess meins liggja í því, að sú stj., sem sat að völdum næst á undan núv. stj., undirbjó ekki málin undir þingið og hafði heldur enga aðstöðu til þess. Núv. stj. styðst við þingmeirihl., svo að vona má, að það takist að undirbúa málin þannig, að þinghald þurfi ekki að vera eins langt næst og það hefur nú verið. En eitt skilyrði fyrir því, að svo megi fara, er, að stj. fái sem lengstan frest til þess að undirbúa málin, og í því skyni er þetta frv. flutt, enda þótt stj. sé ljóst, að vel megi svo fara, að sá tilgangur, sem lýsir sér í frv., nái ekki fram að ganga, ýmist af orsökum, sem sumpart mætti sjá fyrir, eða af orsökum, sem við gerum okkur enga grein fyrir, eins og sakir standa.
Þetta er nú, held ég, í meginatriðum það, sem fyrir okkur vakir, og það er miklu einfaldara mál en stjórnarandstaðan vill láta sér skiljast. Frá okkar bæjardyrum séð er þetta gert í því skyni að þjóna sameiginlega hagsmunum allra þeirra, sem óska, að þingstörfin megi ganga vel og stjórnarstörfin fara sæmilega úr hendi. Ég viðurkenni, að það er hugsanlegur möguleiki, að þinghald í haust gæti leitt til þingrofs, en ekkert fremur á þessu hausti en öðrum haustum, og við höfum látið okkur hafa það að halda þing á haustin ár eftir ár, og það hefur verið haft orð á því innan allra flokka, hvort ekki bæri að ákveða, það sem reglu, að haustþing væri haldið fremur en vorþing, m.a. vegna þess, að það þykir hægara að ganga frá fjárl. af einhverju skynsamlegu viti með þeim hætti heldur en með því að halda vorþing. Ég viðurkenni, að þessi möguleiki er fyrir hendi, að ósamkomulag á næsta haustþingi gæti leitt til þingrofs, en ekki í ríkari mæli nú en verið hefur áður og verður væntanlega seinna. Að í þeim blöðum, sem að stj. standa, kemur fram nokkur rígur milli þeirra flokka, sem að stj. standa, er ekkert nýmæli. Ég hef áður átt sæti í samsteypustj., þar sem flokkur hv. þm. einnig átti síns, umboðsmenn, og ég man mjög vel, að einnig þá deildu blöðin og báru sakir hvert á annað og hvert á annars flokk, og stundum svo, að okkur, sem í stj. áttum sæti, þótti langt úr hófi fram. En stj. undi vel sínum hag fyrir því og lét þá, sem í blöðin skrifuðu, þjóna sínu flokkslega eða mannlega eðli. En af því að ég hef orðið var við það í þessum umr., að stjórnarandstæðingar virðast sumpart hlakka yfir ósamkomulagi innan stj., en sumpart bera kvíðboga fyrir því, og það heyrðist mér vera alvara hjá þessum hv. þm., þá skal ég upplýsa það, og þá væntanlega honum til ánægju, að í okkar samstarfi er enn ekkert komið fram, sem bendir til þess, að menn þurfi fremur að bera kvíðboga, fyrir núv. stjórnarsamstarfi en títt hefur verið. Ég verð að gera þá játningu, að mér hefur þótt það gegna furðu, hvað við höfum komizt yfir, miðað við þá örðugleika, sem við áttum við að etja, þar sem við tókum við öllu eins og það var, enda er það viðurkennt af öllum flokkum, að það hafi ekki verið neitt barnameðfæri að ráða fram úr þeim vanda. Þess vegna hef ég ástæðu til að hughreysta þá, sem bera kvíðboga fyrir stjórnarsamstarfinu, með því að segja, að úr því að við höfum komizt yfir byrjunarörðugleikana, þá standa vonir til þess, að eftir á verði ekki síður, heldur fremur, komizt yfir það, sem fram undan er, þegar okkur gefst meira næði til þess að starfa og við auk þess höfum öðlazt þann ávinning, sem persónuleg viðkynning jafnan færir, því að hún eykur alltaf líkurnar fyrir því, að menn geti sameinazt um ólík sjónarmið og haft hugann fastan við það eina stóra og öllu ráðandi sjónarmið, sem ætti að verða, og láta flokkssjónarmiðin víkja, fyrir heildarsjónarmiðum. Ég sé svo ekki ástæðu til að hafa þessi orð fleiri, ég vænti þess, að mér hafi tekizt að segja mína skoðun og skýrt mitt mál ádeilulaust fyrir þessum hv. þm., eins og mér fannst hann hafa tilhneigingu til að túlka sína skoðun.