09.02.1945
Efri deild: 123. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 761 í B-deild Alþingistíðinda. (1056)
278. mál, samkomudagur reglulegs Alþingis 1945
Frsm. (Bjarni Benediktsson):
Ég get ekki annað en látið undrun mína í ljós yfir þeim skoðunum, sem komið hafa fram gegn þessu frv. Þó verð ég að segja, að till. manna hafa verið hóflegri hér en sumra í Nd. Þeir vildu, að þingið stæði allt árið og ákveða samkomudaginn 1. maí.
Hvort sem það er nú fyrir það, að háttv. stjórnarandstæðingar hafa orðið varir við andúð manna á þessum till., eða forsvarsmenn þeirra hér í Ed. eru skynugri en í Nd., þá er það víst, að till. þeirra hér eru betri og hóflegri. Það, sem einkum mælti í móti 1. okt., var, að dómi háttv. 1. þm. S.-M., að það gæti leitt af sér vetrarkosningar, en þeim hafa framsóknarmenn ætíð verið mótfallnir. Þetta er gömul grýla, sem einatt hefur verið notuð á bændur, þegar mikils hefur þótt við þurfa, en sú grýla mun nú vera farin að missa gildi sitt. Bændur trúa því ekki lengur, að sjálfstæðismönnum séu vetrarkosningar neitt kappsmál. Annars sagði háttv. þm., að hann gerði það ekki að sínum orðum, að þetta vekti fyrir ríkisstj., enda mun þetta uppfundið af óvandaðri flokksbræðrum hans.
En það er vert að minnast þess í þessu sambandi, að ef framsóknarmenn hefðu fengið að ráða í haust, þá hefði landið annáðhvort verið stjórnlaust eða dregið hefði til vetrarkosninga. Það kemur þess vegna úr hörðustu átt, þegar þessir menn eru að saka hæstv. ríkisstj. og stuðningsmenn hennar um það, að þeir vilji stofna til vetrarkosninga. Og við háttv. 1. þm. S.-M. vil ég segja það, að hann ætti heldur að reyna að hafa bætandi áhrif á flokksbræður sína en bera hér fram skoðanir sér verri manna.
Það voru þó einkum ummæli háttv. þm. S.-Þ., sem komu . mér til að standa upp. Hann féllst á það, að haustþing væru skynsamlegri, og tók þannig afstöðu gegn till. um 1. maí. En hann áleit, að samkvæmt frv. væri þingið kvatt saman hálfum mánuði of seint, og taldi búa klókindi undir. Má þar segja, að margur heldur mann af sér. Í lok ræðu sinnar gat hann þó þess, að það var ekki nema að litlu leyti Alþ., sem leysti dýrtíðarmálin á síðasta hausti, heldur búnaðarþingið eða bændurnir. Alþ. hafði þá ákveðið frest eftir frest, en þegar loks leitað var til aðilanna sjálfra, þá fékkst viðunandi lausn. Af þessu er ljóst, að það er ekki fyrst og fremst þingið, sem hefur hér úrslitaáhrif. Hitt skiptir mestu máli, að ríkisstj. fái tóm til að undirbúa málin og semja við þá aðila í landinu, sem mest hafa að segja og úrslitaatkvæði hafa um þessi mál. Þegar þetta hefur verið rifjað upp fyrir háttv. þm. S.-Þ., þá vænti ég, að hann sjái, í hverju honum hefur skjátlazt, og fallist á frv. óbreytt.