09.02.1945
Efri deild: 123. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 762 í B-deild Alþingistíðinda. (1059)
278. mál, samkomudagur reglulegs Alþingis 1945
Jónas Jónsson:
Ég er nokkuð undrandi yfir ræðu 6. þm. Reykv. Mér finnst hv. þm. ekki hafa áttað sig á því, að það gekk allt öðruvísi til í haust um stjórnarmyndun en hann vildi vera láta. Búnaðarþing hafði vitanlega ekkert löggjafarvald í þessum efnum. Það var kallað saman, eins og Morgunblaðið hefur sagt frá, eftir óskum stjórnmálamanna úr Framsfl. og Sjálfstfl., er þá voru að hugsa um stjórnarmyndun, sem raunar ekkert varð úr. Og það, sem kom öllum vel, sem voru að hugsa um stjórnarmyndun þá, var að fá það, sem kallað er „moralskan stuðning“ bænda við það, að þeir féllu frá þessum rétti, sem þeir áttu eftir sexmannanefndarálitinu. Allan þann tíma, sem þeir, er ætluðu að taka á sig þessa byrði, voru að hertygjast, var stöðugt verið að framlengja heimild til að borga niður dýrtíðina. Er þetta ekki ósvipuð aðferð og þegar Jón Arason var tekinn af lífi. Það gekk mjög seint og varð að gera margar atrennur, áður en það heppnaðist. Á sama hátt var búið að sarga svo í þessu máli, að það hefði getað legið sem fyrir fram ákveðið á Alþ. og síðar verið um það gerð endanleg samþykkt.
Þegar 15. september var allt í óvissu um þetta, og þá þurfti þingið að taka ákvörðun tvisvar eða þrisvar og tók þær í raun og veru, stundum á þingi og stundum öðruvísi.
Það er því síður en svo stuðningur fyrir hv. þm. þessi saga frá því í haust, því að hún sýnir, að ekki hefur verið of langur tími til ályktana og ákvarðana, þótt þingið væri kallað saman 2. september.
En svo er annað atriði, sem gerir málið miklu erfiðara nú í haust, og það er, að hæstv. fjmrh. er búinn að segja, að hann vilji ekki borga niður dýrtíðina. En þá kemur sú stóra spurning: Hvað á þá að gera? Og það er stór ákvörðun. Annaðhvort að hleypa dýrtíðinni upp eða gera annað, sem er alveg óþekkt. Og þó að sleppa ætti hinum launuðu, væri betra, að það væri hæstv. Alþ., sem gerði það á formlegan hátt.
Fyrir því er þessi staðhæfing, að ekki sé heppilegt að hafa þing starfandi síðari helming septembermánaðar, ekki á neinum rökum reist og afsannast af reynslu frá því í vetur.
Hitt vildi ég enn fremur, að hv. þm. gerði sér grein fyrir, að hann gerði of mikið úr ákvörðun búnaðarþings, sökum þess að hún var aðeins óbein. Þeir flokkar, sem voru að hugsa um að vera stjórnarflokkar og höfðu gert skynditrúlofun, sem raunar ekki leiddi til giftingar, höfðu nægilegt atkvæðamagn til þess að gera þá ákvörðun, sem þurfti, og þeim bar blátt áfram skylda til að gera þetta strax. Búnaðarþing var aðeins kallað saman til þess að taka ábyrgðina af þinginu. Það var alveg fráleitt, að búnaðarþing hefði nokkuð um þetta að segja, heldur hafði Alþ. allt valdið. Alþ. hafði gert l., sem leiddu til sexmannanefndarsamkomulagsins, og hæstv. Alþ. virðist nú eftir stuttan tíma munu taka ákvörðun um það að svipta bændur þessum 8 millj. Það var því hæstv. Alþ., sem hafði öll völd í þessum efnum. Það þótti bara þægilegra fyrir þá stjórnmálaflokka, sem stóðu að þessu samkomulagi, að fá eins konar meðmæli frá búnaðarþingi, og ég get ekki leynt því fyrir hv. þm., að búnaðarþing hefði aldrei gefið þessi meðmæli, ef því hefði verið sagt, að það ætti að koma upp þessari ríkisstj., þar sem höfuðandstæðingar bænda fara með önnur eins völd og kommúnistaráðh. fara nú. Því er það, að röksemdir hv. þm. um þýðingu búnaðarþings liggja aðeins í þessu, að sökum villandi upplýsinga, sem þessum mönnum voru gefnar, gáfu þeir meðmæli, sem þeir áttu ekki að gefa og höfðu í rauninni enga aðra þýðingu en þá að létta samskipti þeirra, sem eiga nú að taka þessa fjárhæð af bændum.
Ég vil að lokum benda á það, að núv. hæstv. fjmrh., sem er ágætur lögfræðingur, hélt fyrir nokkru ræðu í flokksfélagi flokks síns í listamannaskálanum, að því er mig minnir. Þessi ræða var svo prentuð í aðalblaði flokksins, hinu ágæta Morgunblaði, og þar segir eftir þessum ágæta lögfræðingi, að bændur hafi haft lagarétt til að taka það fé, sem sexmannanefndarálitið úrskurðaði þeim til handa. Þetta er gagnstætt því, sem Hermann Jónasson, sem einnig er ágætur lögfræðingur, hélt fram og sömuleiðis Ólafur Thors í Morgunblaðinu. Þeir halda því sem sé fram, að sexmannanefndarálitið sé tóm vitleysa.
Af þessu getur hv. 6. þm. Reykv. séð, að það var aðeins gestavinátta, sem búnaðarþingið gerði, og áðurnefnd meðmæli einskis virði, þar sem ekki var staðið við þau skilyrði, sem sett voru.