09.02.1945
Efri deild: 123. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 765 í B-deild Alþingistíðinda. (1061)
278. mál, samkomudagur reglulegs Alþingis 1945
Jónas Jónsson:
Herra forseti. — Ég vil aðeins benda hv. 6. þm. Reykv. á það, að um þetta atriði var deilt þannig, að þessir tveir kunnu stjórnmálamenn, hv. þm. Str. og hæstv. forsætisráðherra, lýstu því yfir í haust, gagnstætt því, sem þessi ágæti lögfræðingur segir, að sexmannanefndarálitið hefði ekkert gildi. En nú hef ég aftur vitnað til annars flokksbróður hans, sem segir hið sama. Það er af ónógum kunnugleika mælt, að bændur hafi haft nokkurn grundvöll, því að ef um grundvöll var að ræða, ef t.d. hæstv. fjmrh. hefur á réttu að standa, var ekkert annað fyrir bændur en að setja gott verð á sína vöru og fara síðan í mál við ríkið, eins og verkamenn mundu gera, ef ekki væri staðið við þá kauptaxta, sem þeim eru ákveðnir. En þess vegna er það, að það, sem allt valt á að þessu leyti fyrir bændur, var ekki fyrst og fremst þetta. Það áttu þeir að vita og hafa vitað, að var rétt. En hitt var annað, að þeim var lofað tilteknu, ef þeir gerðu þetta, og það er það, sem ekki var staðið við.