05.01.1945
Neðri deild: 95. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 768 í B-deild Alþingistíðinda. (1085)

230. mál, tekjuskattsviðauki 1945

Frsm. (Ásgeir Ásgeirsson):

Herra forseti. — Frv. þetta er flutt af meiri hl. fjhn. og fyrir tilmæli hæstv. fjmrh. Þessi skattur er áður þekktur og hefur verið lagður á einu sinni áður. Um tekjuþörfina þarf ekki að ræða, enda oft minnzt á hana í öðrum samböndum. Læt ég því ekki fleiri orð fylgja máli mínu af hálfu fjhn.