17.01.1945
Neðri deild: 107. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 775 í B-deild Alþingistíðinda. (1107)

250. mál, ríkisreikningar 1941

Fjmrh. (Pétur Magnússon):

Þetta frv. er samið á venjulegan hatt í samræmi við ríkisreikninginn 1941, en honum mun verða útbýtt á þessum fundi. En ríkisreikningnum fylgja aftur á móti aths. og till. endurskoðenda stjórnarinnar.

Ég hef á þessu stigi að minnsta kosti ekki neitt frekar um málið að segja, en leyfi mér að mælast til, að frv. verði vísað til 2. umr. og fjhn.