12.01.1945
Neðri deild: 103. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 683 í B-deild Alþingistíðinda. (114)

217. mál, skipun læknishéraða

Frsm. (Gunnar Thoroddsen):

Við 2. umr. málsins bar hv. 3. þm. Reykv. fram brtt. um Álafoss- og Reykjavíkurlæknishérað. Heilbrigðis- og félagsmálan. hélt fund um þessa till. og ræddi hana við flm. Það hefur síðan verið leitað álits landlæknis og einnig borizt munnleg umsögn héraðslæknis Reykjavíkur um till., og munu þeir ekki geta fallizt á hana, a.m.k. ekki- óbreytta. Til þess að mál þetta, sem þarf að afgr. nú og helzt skjótlega, tefjist ekki, leyfi ég mér að beina þeim tilmælum til hv. 3. þm. Reykv., að hann að þessu sinni taki till. sína aftur, en hins vegar verður hún að sjálfsögðu tekin til athugunar fljótlega af mþn. í læknaskipunarmálum, sem nú starfar, og ég fyrir mitt leyti gef honum það fyrirheit, að ég mun sjá um, að það verði gert fljótlega, svo að þetta mál hafi fengið rækilega athugun í samráði við hann fyrir haustið. Ég vil beina þeim tilmælum til hv. þm., ef hann sæi sér fært, að taka till. aftur.