12.02.1945
Efri deild: 125. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 784 í B-deild Alþingistíðinda. (1140)
166. mál, bygging nokkurra raforkuveita
Eiríkur Einarsson:
Það er aðeins örstutt. Ég þakka hv. frsm. n. fyrir ummæli hans, að vilja ljá brtt. minni samþ. sitt, en jafnframt vil ég taka það fram, að frá mínu sjónarmiði kemur sá þáttur lagasetningarinnar, ef þetta verður sameiginlega lögfest, jöfnum höndum til greina. Ég tel það ekki á valdi einstakra þm., hvort sem það er hv. frsm. n. eða ég, að ákveða, í hvaða röð framkvæmdir skuli verða. Til þess er faglegt eftirlit þessa mikilsverða máls fyrir hendi og kostað af ríkissjóði, að það verður aðalleiðsögnin um framkvæmdaröðina. Og mér finnst, þegar á það er litið, þá geti ég lifað í nokkuð mikilli bjartsýni um, hvaða röð muni verða. Ég tók eftir því í ræðu hv. frsm., að hann sagði, að sér væri ekki fullljóst. hve fullkominn undirbúningur væri fyrir hendi að því er þessa væntanlegu rafveitu austan fjalls snerti. Ég staðhæfi það, að það hefur ekki síður verið, og var fyrr upp á teningnum, undirbúningur um allt, er að því laut, þar fyrir austan til kauptúnanna heldur en um áframhald veitunnar suður Reykjanes, af skiljanlegum ástæðum var farið að vinna að því á undan. Ég vissi„ að lengi hafði verið unnið að því, að Rafmagnseftirlit ríkisins athugaði allt, er að gagni mætti verða við fullkomna áætlun um rafveitu fyrir kauptúnin austan fjalls, og það var gert fyrr en áætlunin um Reykjanesveituna. Kom í ljós, að rafveitan austan fjalls hefur allar líkur til þess að bera sig. Þetta styðst nú nokkurn veginn við hlutarins eðli, þar sem um er að ræða öðrum þræði mjög fjölbyggð kauptún og svo stuttar vegalengdir hins vegar. Þó að ég vilji forðast að bera fræðimennina fyrir mig lengur en hóflegt er, þá vil ég þó segja þetta.