13.02.1945
Efri deild: 126. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 796 í B-deild Alþingistíðinda. (1179)
141. mál, kaup eigna setuliðsins
Gísli Jónsson:
Ég verð að segja það, að mig undrar ræða háttv. 1. þm. Reykv. Hún bar með sér, að hann hefur ekki lesið brtt. mínar. Þar er skýrt fram tekið, að n. skuli greiða tollana, en ekki almenningur, svo að hér á alls ekki að skerða þann hag, sem einstaklingar hafa haft af þessum viðskiptum. Það má segja, að með þeim hætti sé ríkissjóður að greiða ríkissjóði, en það er þó það, að á þann hátt fær ríkissjóður það, sem hann hefði fengið, ef þetta hefði verið flutt inn, og það finnst mér sjálfsagt. En mér þykir líklegt, að mörgum sé forvitni á að vita, hver útkoman verður af þessari verzlun, þegar búið er að greiða þessa tolla.
Hv. 1. þm. Reykv. sagðist ekki geta skilið, hvernig hægt væri að láta verðlagseftirlitið ná til þessa. En um það eru alveg skýr ákvæði, að engin keðjuverzlun má eiga sér stað, en fyrir því er enginn varnagli sleginn með þessar eignir, enda þótt hér sé um efni að ræða, sem skiptir milljónum króna. Það má segja, að ekki sé unnt að koma þessu við með það, sem búið er að selja, en ef skýrslur eru réttar, þá er geysimikið eftir, og ég hygg, að það líði meir en eitt og meir en tvö ár, þangað til þessari sölu er lokið. Þó er ég mest hissa á skilningi hv. þm. á brtt. mínum við 5. gr. frv. Sú brtt. er einungis viðbót við greinina, sem á að standa eftir sem áður. En án þess að þessum ákvæðum verði bætt við er engin trygging fyrir því, að þessar byggingar verði látnar hverfa. Það er engin trygging í því, þótt braggarnir séu fluttir til, þar sem þeir eru einatt byggðir upp aftur í sama formi (BSt: Er þá ekki höggvið fullnærri frelsi einstaklingsins, ef á að hefta þetta?) Við höfðum þann rétt gagnvart setuliðinu, að þessar byggingar yrðu látnar hverfa, og þegar ríkið keypti þetta, þá hvíldi raunverulega hin sama skylda á því; en það lét bara af hendi þennan rétt, sem það aldrei átti að gera.
Ég veit um fjölda fólks, sem óskar eftir því, að þetta hverfi að fullu og öllu. Ég skal ekki ræða meira um útkomuna á þessari verzlun, en ef búið er að selja aflið af þessu, sem ég ekki trúi, þá er útkoman ekki góð. Það má vera, að búið sé að selja það skásta, en það lélegasta sé eftir, og ég held, að ekki hefði verið vanþörf á að losna við það með fljótvirkum og góðum tækjum. Ég hygg, að enn þá sé ekki búið að semja um bót á jarðraski nema þar, sem búið er að rífa skálana, enda verður ekkert lagfært fyrr en þeir eru farnir, en ég sé ekki betur en þeir standi óhreyfðir hér víðs vegar um bæinn, svo sem við Þjóðleikhúsið.