21.02.1945
Efri deild: 133. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 799 í B-deild Alþingistíðinda. (1184)

141. mál, kaup eigna setuliðsins

Frsm. (Magnús Jónsson):

Herra forseti. — Við 2. umr. þessa máls gat ég þess, að nokkrar frekari upplýsingar mundi verða hægt að láta í té um það, hvernig nú væri komið viðskiptum þeim, sem stöfuðu af kaupum hermannaskálanna af setuliðinu hér og byggt er á í bráðabirgðalögum þeim, sem hér á að staðfesta. Það hefur ekki unnizt tími fyrir fjhn. til þess að koma saman og ræða málið. Hefði þá ef til vill verið æskilegt að gefa út framhaldstölur á nál., ef hún óskaði eftir, að þær lægju fyrir prentaðar, og ef menn teldu það svo mikils virði, væri hægt að taka málið nú af dagskrá. Hins vegar tel ég ekki nauðsyn á að gefa út slíkt framhaldsnál. og vil vekja athygli á þessu einnig í sambandi við væntanlegar breyt. á frv., að sannleikurinn er sá í þessu máli, að það er svo langt komið, að það væri næsta undarlegt, ef fara ætti að breyta þessum l. nú. Bráðabirgðalögin voru gefin út 26. apríl 1944, og eftir þeim hefur verið starfað, og er sölu hermannaskálanna að verulegu leyti lokið. Það væri því næsta furðulegt, að um leið og þessi bráðabirgðalög eru staðfest, þá ætti að fara að breyta þeim l., þannig að það eitt út af fyrir sig er nægilegt um þessar brtt., sem liggja fyrir. Ég vil því skýra frá því hér, að fjhn. hefur borizt bréf frá sölunefnd setuliðseigna, og það bréf ber með sér, að n. hefur veitt viðtöku 62331/2 hermannaskála af 7400, sem samið hafði verið um kaup á, og eru þessir skálar greiddir. Óafhentir eru því 11661/2 skáli. Af þessum 62331/2 skála hefur verið ráðstafað eða unnið að 59011/2, þannig að eftir eru 332 skálar. Þessu hefur verið ráðstafað þannig, að seldir hafa verið 34713/4 skáli, rifnir að innan 2350 og rifnir niður að fullu 793/4. Óseldu skálarnir eru flestir við Seyðisfjörð, nálægt Reykjavík og við Hvalfjörð, þessir 332, sem ekki hefur verið ráðstafað. —Þannig stendur málið. Eins og ég hef áður sagt, er þessum viðskiptum ákaflega langt komið, og hefur verið fylgt þeim reglum, sem bráðabirgðalögin ákveða, og virðast því vera erfiðleikar á því að fara að breyta nú til. — Ég hef hér einnig reikningsyfirlit á sama hatt og það, sem ég birti hér við 2. umr., sem miðað var við 1. okt. s.l., en þetta yfirlit er hins vegar miðað við 31. des. s.l. eða árslokin, og er það að ýmsu leyti nokkuð svipað. — Seldir hafa verið hermannaskálar fyrir kr. 3994613,00, svo og ýmislegt fleira, þannig að sala alls, bæði úr birgðaskemmum og af lausafé úr hermannaskálunum hefur numið alls kr. 4918166,00. Langstærsti útgjaldaliðurinn eru skaðabætur, sem greiddar hafa verið, og nema þær kr. 1513100,00. Síðan er næsti liður greiddur setuliðinu fyrir herstöðvar, kr. 605971,00, og fyrir lausafé kr.183521,00. Þá er kostnaður við vinnu vegna niðurrifs skálanna, og nemur hann kr. 728305,00. Mismunurinn eða ógreitt til þessa er talið nema kr. 1684793,00, og liggur þessi mismunur að mestu leyti á innistæðu í Landsbanka Íslands, eða kr. 1039567,00. Svo að segja allt hitt er hjá viðskiptamönnum, eða kr. 584854,00, og fylgir hér skrá yfir viðskiptamenn, er sýnir, að talsvert hefur komið inn, síðan yfirlitið frá í október s.l. var gert. Um þetta er það að segja, að mestar líkur eru til, að mest kæmu til greina verulegar landkröfur frá Austfjörðum, þ.e.a.s. frá Seyðisfirði. Mér er ekki vel kunnugt um þetta, en þar eru talsverðar þyrpingar hermannaskála, og lítur helzt út fyrir, að þar verði ekki af sölu. Gæti það orðið til þess, að þeir yrðu rifnir niður, og yrði þá að bæta þar landspjöll, þannig að af því gætu orðið nokkrar kröfur, en annars hafa þessir hermannaskálar yfirleitt verið seldir þannig, að þegar sýslur, bæir eða hreppar hafa keypt, hafa þau keypt með því skilyrði, að skálarnir yrðu ekki aðeins rifnir niður, heldur yrði einnig að bæta þau spjöll, sem um yrði að ræða í því sambandi. — Hér í Reykjavík er talsvert enn þá um þessa hermannaskála, og eru margir þeirra ekki frá amerísku hernaðaryfirvöldunum, heldur frá þeim brezku. Svo mun vera um hina stóru vörugeymsluskúra niður við höfnina, sömuleiðis um stóra hverfið hjá Stúdentagarðinum á háskólalóðinni, einnig er hér mjög stór hermannaskálaborg fyrir vestan og sunnan íþróttavöllinn, og mun sú þyrping alveg vera fyrir utan þessa samninga, hvernig sem á því stendur. Mér og þar um bæinn eru miklar þyrpingar, en tilætlunin mun vera sú, að bærinn kaupi þá skála og eignist þá, og er sennilegt, að gerðir verði sams konar samningar við brezku hernaðaryfirvöldin hér og gerðir hafa verið við þau amerísku. Verður það þá með þeim hætti, að ekki yrði um kröfur um landspjöll að ræða á þeim lóðum, sem bærinn á. Hins vegar standa sumir skálarnir á lóð, sem er einkaeign, og eru lóðirnar í flestum tilfellum þannig, að ekki þarf að bæta þær öðruvísi en að rýma þær og koma þeim í jafngott stand og þær áður voru í.

Ef hv. þm. Barð. óskar, að málið sé tekið út af dagskrá, skal ég gjarnan fallast á það. N. hefur ekki haft tök á að halda fund og vissi ekki, að málið yrði tekið á dagskrá í dag.

Annars virðist mér, að ekki sé unnt að láta þau ákvæði, sem greinir í þessum brtt., koma til framkvæmda varðandi hermannaskálana, úr því sem komið er. Varðandi aðrar eignir, svo sem bíla o.fl., þá upplýsti hæstv. ráðherra, að öðru máli gegndi um það, þar sem það er keypt til beinna nytja, en skálarnir voru fyrst og fremst keyptir til að losna við þá, þótt gott sé auðvitað að fá timbrið. Ég talaði heldur á móti þessum brtt. við 2. umr. En ef hv. þm. Barð. vill, skal ég láta athuga þetta, en eins og kunnugt er, líður nú að síðustu dögum þingsins, svo að óvíst er, að n. geti varið miklum tíma til þess.