21.02.1945
Efri deild: 133. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 802 í B-deild Alþingistíðinda. (1187)

141. mál, kaup eigna setuliðsins

Bernharð Stefánsson:

Herra forseti. — Ég vildi aðeins bera fram fyrirspurn viðvíkjandi yfirlýsingu hæstv. ráðh., hvort ekki sé öruggt, þegar skálar eru komnir í eigu einstaklinga eða félaga og fullt samkomulag er við landeiganda, að þessi hús fái að vera í friði. Ég get getið þess, að í mínu héraði er það svo, að þar hafa félög í héraðinu keypt stóran spítala og breytt honum svo, að þetta er einn bezti samkomustaður héraðsins.

Annars vil ég taka það fram, að ég tel, að brtt. hv. þm. Barð. við 5. gr. komi alls ekki til mála, enda mun hann nú fallinn frá henni. Samkvæmt henni ætti að rífa alla skála niður á 2 árum, jafnvel þótt þeir væru komnir í eigu bænda sem hlöður eða geymsluhús. — Ég skil ekki þá andstyggð, sem sumir virðast hafa á þessum byggingum. Minn fegurðarsmekkur er á þá lund, að mér finnst þessar byggingar fallegri en margskekktir torfkofar. En ég ætla ekki að fjölyrða um þetta atriði, heldur einungis spyrja að því, hvort einstaklingar og félög fái ekki að halda þeim eignum, sem þau hafa keypt.