21.02.1945
Efri deild: 133. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 802 í B-deild Alþingistíðinda. (1188)

141. mál, kaup eigna setuliðsins

Fjmrh. (Pétur Magnússon):

Ég þarf naumast að svara þessari fyrirspurn. Það liggur í augum uppi af því, sem ég sagði áðan, að ef skálarnir hafa verið seldir, þá er það ekki lengur á valdi ríkisstjórnarinnar að ráðstafa þeim. Til þess þyrfti eignarnámsheimild, en inn á þá leið mun tæpast verða farið.