21.02.1945
Efri deild: 133. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 802 í B-deild Alþingistíðinda. (1190)

141. mál, kaup eigna setuliðsins

Frsm. (Magnús Jónsson):

Ég get raunar fallið frá orðinu, úr því að hv. þm. Barð. ætlar að taka aftur þessar till. Mér virðist, að 2. brtt. skipti ekki miklu máli, þar eð hægt er, eftir því sem mér er sagt, að láta dómstólana dæma um gildi matsins.

Þegnarnir eru þá ekki sviptir neinum rétti. En ég álít heppilegra, að n. afgreiði þetta, að svo miklu leyti sem mögulegt er.