21.02.1945
Neðri deild: 134. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 837 í B-deild Alþingistíðinda. (1206)
283. mál, skattgreiðslur h/f Eimskipafélags Íslands
Frsm. meiri hl. (Jón Pálmason):
Herra forseti. Þetta frv., sem hér liggur fyrir, fer fram á að framlengja l. um skattfrelsi h/f Eimskipafélags Íslands um tveggja ára skeið, eins og gert hefur verið ávallt síðan 1928. Það, sem liggur hér til grundvallar, er það, að litið er á þetta félag sem alþjóðarstofnun. Fjhn. hefur ekki orðið sammála um þetta. Hv. þm. V.-Húnv. neitaði að fylgja meiri hl. og hefur skilað séráliti.
Þegar Eimskipafélagið var stofnað, olli það meiri gleði en nokkur önnur félagsstofnun, og allur almenningur taldi sér skylt að leggja eitthvað af mörkum. Um gagn þessa félags þarf ekki að deila. Það er alþjóðarstofnun, og þykir því skylt og eðlilegt, að ríkisvaldið fari ekki að taka hagnað þess í skattgreiðslur og draga þannig úr möguleikum þess til að bæta samgöngur landsins. Ég skal ekki fara inn á þá braut að ræða afstöðu minni hl., því að hv. þm. V.-Húnv. mun gera það, en ég vona, að hv. þingd. geti orðið sammála meiri hl.