22.02.1945
Neðri deild: 135. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 876 í B-deild Alþingistíðinda. (1227)

283. mál, skattgreiðslur h/f Eimskipafélags Íslands

Barði Guðmundsson:

Herra forseti. — Ég vil leyfa mér að óska þess, að síðast komi til atkvgr. einmitt byrjunin. Því að það fer alveg eftir því, hvernig atkv. falla um hina liði brtt., hvernig ég fyrir mitt leyti greiði atkv. um það spursmál, hvort það eigi að vera 1 eða 2 ár, sem þetta eigi að gilda. (EystJ: Þetta er vandamál.)