01.03.1945
Efri deild: 139. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 889 í B-deild Alþingistíðinda. (1245)

283. mál, skattgreiðslur h/f Eimskipafélags Íslands

Gísli Jónsson:

Herra forseti. Það er náttúrlega algerlega rangt skilið hjá. hv. fyrri þm. Eyf. að taka ummæli mín þannig, að ég teldi mig geta fylgt hans till. Ég fullyrti, að hún væri skárri en önnur, sem er ómöguleg, en var komið inn í frv. í Nd. Vitanlega get ég ekki fylgt till. hans, nema ég hafi aðeins um þessa tvo kosti að velja. (BSt: Hv. þm. álítur till. til bóta á frv.) Já, eins og frv. er nú. En samþykkt hennar þýðir 11/2 millj. kr. skatt á félagið. Það er ekki hægt að neita því. Ég mun ekki ganga inn á að fylgja þeirri till., nema ég eigi um ekkert annað að velja en milli hennar og frv., eins og það er.

Hv. þm. sagði, að samkv. till. hefði ríkið aldrei nema jafnan rétt og hluthafar. Ég tel óþarfa að skýra það hér, að ef ríkið á helming hlutafjár á móti hluthöfum og atkvæðisréttur takmarkast af upphæð þess fjár, sem þeir eiga, þá er útilokað annað en ríkið ráði öllu. Ef annað á að vera, verða öll hlutabréf að koma fram, en það verður aldrei í svona dreifðu hlutafélagi. Auk þess má enginn einn hluthafi hafa meira en 20% af atkvæðum. Því verður ekki neitað, að það er rétt, sem ég hef sagt um þetta.

Frá tveim hv. þm. hafa komið fram sterk meðmæli um, að eðlilegt sé að gera þetta félag að meiri almenningseign en verið hefur, m.a. með nýju hlutafjárútboði. Ég vil benda hv. 1. þm. Eyf. og einnig þessum tveim hv. þm. á það, að árið 1938 skrifaði ég langa og ýtarlega grein um þetta mál og stakk þá upp á því, að hlutafjársöfnun yrði hafin, sem næmi ekki aðeins 1 millj. króna, heldur 25 millj. króna. Þá þótti það brjálæði að safna 25 millj. fyrir Eimskipafélagið, og ræddi ég þetta þá við nokkra af stjórnendum félagsins, og þótti þeim það hin mesta fjarstæða að fara inn á þessa braut. En sannleikurinn er sá, að mesta syndin, sem Eimskipafélagið hefur framið, er sú að loka fjársöfnun. Ég álít, að það þyrfti að breyta l. félagsins þannig, að það yrði hægt fyrir hvern einstakling að kaupa ný hlutabréf með nafnverði, svo að ómögulegt yrði að gera félagið að fjársöfnunarfyrirtæki fyrir einstaka menn. Ég vildi því fyrir mitt leyti, — og mæli ég þar ekki fyrir hönd hv. fjvn. —, taka upp umr. um þetta mál, því að mín skoðun er sú, að það eigi að opna hlutafjársöfnun fyrir almenning og aldrei að loka henni. Þegar vel gengur, á að safna félaginu fé, sem það hefur sem varasjóði og getur notað, þegar illa gengur. Þá mundi það koma fram, sem hv. þm. S.–Þ. hefur talað um, að ungum sem gömlum gæfist kostur á að gerast meðeigendur og haldist þá sá andi, sem byrjað var í, þegar félagið var stofnað. — Ég vildi svo leiðrétta það, sem hv. þm. S.-Þ. og einnig hv. 3. landsk. hafa hér sagt, að það er rangt, að Eimskipafélagið hafi flutt vörur til landsins, eingöngu með sínum ágóða, en látið svo skipaútgerðina flytja vörurnar út á land fyrir annað verð. Í flestum tilfellum hefur Eimskipafélagið sjálft dreift þessum vörum. Hef ég sjálfur nokkra persónulega reynslu í þessum efnum, og hafa vörur, sem ég hef fengið fluttar til landsins með skipum Eimskipafélagsins, verið látnar liggja hér í Reykjavík yfir lengri tíma til þess að félagið fengi sjálft tækifæri til að senda þær með sínum eigin skipum út á land. Eimskipafélagið hefur haft. hér ákveðin skip til þess að dreifa vörum sínum út á land og annast þessa flutninga mest með sínum eigin skipum, þótt það hafi einnig sent sérstakan áburð út á land með skipum Skipaútgerðarinnar.

Að binda saman strandferðirnar, eins og kemur fram í frv., er það kom frá hv. Nd., þá vildi ég segja það út af ummælum hv. þm. S.-Þ., að ég er ekki sammála honum um þetta mál. Ég veit ekki nema það væri mikill kostur að því að binda saman þetta tvennt, en þó má ekki gera það á þann hátt, sem gert er ráð fyrir í frv. nú. M.a. hefur verið rætt í n. um það, sem hv. þm. talaði um, hvort ekki væri hægt að tryggja miklu betri strandferðir meðfram ströndum landsins með því að binda þær við aðila, sem flytja vörur til landsins, og ef ekki yrði um sömu eigendur að ræða, þá yrði þetta a.m.k. undir sameiginlegri stjórn, en ekki yrði þar um Eimskipafélagið að ræða, svo að ég er ekki alveg sammála hv. þm. S.-Þ. um þetta mál.

Einnig vildi ég leiðrétta það, er hv. þm. S.-Þ. sagði, að það væri rangt að gefa Eimskipafélaginu skattfrelsi, vegna þess að það mundi halda uppi kaupverðinu og „standardinum“ í landinu. Þetta er alveg röng hugsun, því að það hefur sannazt nú, að eftir því, sem ríkissjóður hefur farið dýpra ofan í vasa atvinnurekenda, þá hefur skapazt hjá þeim nýtt viðhorf til þess að fara að bæta kjör manna sinna og greiða þeim hærri laun, og hefur þetta því hækkað dýrtíðina í landinu. Mér er kunnugt um þetta, og hafa þessir aðilar sagt við mig: Okkur finnst betra að láta okkar menn, sem hætta lífi sínu og limum, fá svona mikið af gróðanum, heldur en ríkissjóður taki hann og skilji ekkert eftir.

Auk þess er það rangt hjá hv. þm. S.-Þ. að halda því fram, að Íslendingar hafi ekki verið samkeppnisfærir um vöruflutninga fyrir stríð. Mér er vel kunnugt um það, að við gátum alltaf slegið út Norðmenn í þeirri grein hér við land. Ég var þá meðeigandi í einu skipi, sem Eimskipafélagið á nú, og gátum við alltaf fengið hærri frakt heldur en Norðmennirnir, af því að okkar menn unnu betur. Okkar íslenzku menn komu fljótar á staðinn, þeir gættu betur vörunnar og stálu engu af henni. Við fengum því hærri frakt og gátum borgað hærri laun. Reynslan hefur alltaf sýnt það, að ef íslenzku sjómönnunum eru gefin góð skip og góð lífsskilyrði, þá afkasta þeir meiri vinnu heldur en þeir, sem búa við verri kjör. Ég vildi ekki láta þetta mál út úr hv. d. án þess að taka það fram, að reynslan hefur sýnt, að við getum keppt við Norðmenn í þessari grein. Það fór svo, að þetta félag, sem hét h/f Ísafold og varð alltaf að slást við Norðmennina, skilaði ágóða, þegar það hætti störfum, en öll árin, sem félagið starfaði — ekki aðeins síðustu árin — hafði ríkissjóður tekið skefjalausa skatta af fyrirtækinu, en það stóðst samt samkeppnina við Norðmenn, sem enga skatta borguðu hér. (JJ: Þeir borguðu heima.)

Ég er ekki heldur sammála hv. þm. og þeim öðrum mönnum, sem halda því fram, að ekki skuli byggja nein skip fyrr en að stríðinu loknu. Það verður að byggja skip, því að ef einhverjir menn eiga peninga og vilja stöðva endurnýjun flotans, þar til hægt er að byggja skip fyrir sama verð og var fyrir stríð, þá munu þessir sömu menn fá að komast að raun um það, að við verðum þá búnir að missa allt þetta fé í atvinnubótafé. Þess vegna eru það búhyggindi, og það eru klókir menn, sem halda því fram, að við eigum að viðhalda flotanum, en ekki að grafa peningana, og á því veltur framtíð þjóðarinnar og nýsköpunin.

Ég álít, að viðvíkjandi gróðanum frá 1943, sem hv. 3. landsk. þm. var að tala um, að þótt ríkissjóður hefði fengið þessar 23 millj. kr. Eimskipafélagsins til viðbótar, þá hefði þeim milljónum áreiðanlega ekki verið varið betur heldur en ef þessu fé verður varið til þess að byggja upp ný skip, sem yrðu til þess að auka ferðir umhverfis landið og milli landa og sem myndu bæta úr því öngþveiti, sem hefur verið, er og verður sjálfsagt lengi í samgöngumálum vorum.