02.02.1944
Neðri deild: 9. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 895 í B-deild Alþingistíðinda. (1258)

21. mál, meðferð einkamála í héraði

Frsm. (Gunnar Thoroddsen):

Herra forseti. — Frv. það, er hér liggur fyrir, er frá allshn., og er það flutt eftir ósk frá forsetum Alþ., eins og grg. ber með sér.

Þegar l. um einkamál voru sett árið 1936, var nokkuð hert á skilyrðum til þess, að menn gætu orðið héraðsdómarar, og í 32. gr. í þessum l. var m.a. ákveðið, að menn þyrftu að hafa gegnt vissum störfum í þrjú ár til þess að geta öðlazt þetta embætti. Í 7. tölul. 32. gr. fyrrnefndra l. eru talin upp þau störf, sem menn þurfa að hafa gegnt í þessu skyni, og er þar aðallega átt við lögfræðileg störf, málflutningsstörf og störf fulltrúa í stjórnarráðinu o.fl. En frv. það, er hér liggur fyrir og flutt er eftir ósk frá forsetum Alþ., fer fram á nokkrar orðabreyt., sem gerðar eru í samræmi við lagabreyt. á síðasta Alþ. um skiptingu lögmannsembættisins. Aðalbreyt. er því sú að bæta því við, að menn, er hafa unnið þessi störf í þrjú ár, öðlist þennan rétt.

Ég þykist þess fullviss, að allir hv. þm. viti, að þeir menn, er starfa í skrifstofu Alþ., fái margs konar reynslu í að undirbúa og semja lagafrv., og því er það ekki ófyrirsynju, að forsetar hafa farið fram á þessa breyt., svo að þeir geti orðið aðnjótandi réttar til þessa embættis. Ég vil og taka það fram, að þegar góðir menn hafa valizt til þessara starfa, þá er nokkur hætta á því; að þeir hverfi frá þessum störfum, fyrr en skyldi, vegna þess að þeir öðlast ekki rétt til þess að verða héraðsdómarar með því að sitja í þessum störfum, og mundu þeir því sækja um að komast í önnur embætti, sem veittu þeim þennan rétt.

Ég þarf svo ekki að fara fleiri orðum um þetta, en vil taka það fram, að í allshn. hafa komið fram raddir um að áskilja sér óbundnar hendur í málinu.