28.02.1944
Neðri deild: 21. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 901 í B-deild Alþingistíðinda. (1300)

22. mál, Menntaskóla á Akureyri

Sigurður E. Hlíðar:

Herra forseti. — Mér þykir hlýða, að ég segi hér örfá orð, áður en frv. er vísað til n., og geri ég ráð fyrir, að mál þetta fari til menntmn. þessarar hv. d.

Eins og sjá má á frv. og eins og frá því hefur verið gengið í hv. Ed., er hér aðeins um þau nýmæli að ræða, að starfsmönnum við Menntaskólann á Akureyri séu búin sömu kjör og tilsvarandi starfsmönnum við Menntaskólann í Reykjavík. Mér finnst öll sanngirni mæla með því, að báðar þessar stofnanir hafi sömu réttindi gagnvart starfsmönnum sínum, hvort heldur er í Reykjavík eða á Akureyri. En ég vil hér benda menntmn. sérstaklega á eitt atriði, að hér vantar ákvæði inn í, til þess að þessar tvær stofnanir séu alveg hliðstæðar. Samkv. l. er ákveðið, að fjórir fastir aukakennarar skuli vera við Menntaskólann á Akureyri, en ef ég man rétt, eru sjö hér við Menntaskólann í Reykjavík. Nú er þannig ástatt, að það hafa verið skipaðir fjórir fastir aukakennarar á Akureyri samkvæmt l., en einn aukakennara, sem hefur unnið þar í 20 ár og hafði því fullan rétt eða kröfu til þess að verða fastur aukakennari, var ekki hægt að skipa, vegna þess að það vantar pláss fyrir þetta í l.

Ég vildi því leyfa mér að beina því til hv. menntmn., hvort hún gæti ekki lagfært þetta og fært það til samræmingar við Menntaskólann í Reykjavík. Það var aðeins þetta, sem ég vildi segja við n., hvort hún sæi sér ekki fært að gera þessa sanngjörnu breyt., og var þess vegna nauðsynlegt að koma með till. í þessa átt.